Færsluflokkur: Dægurmál
22.6.2018 | 13:39
Saurblaðið. Samstarfssamningur B og D lista.
Nú er stefnt að því að saur íbúa Egilsstaða og Fella fái lítt tefjandi aðgang að Lagarfljóti, það er í borði B og D lista, sem mynda meirihluta í sveitafélaginu Fljótsdalshérað. Nokkra athygli vekur að meirhlutinn er með H-listann sem aftaníossa í þessu máli, sem þó var í aðdraganda sveitastjórnakosninganna, í orði á móti þessari útfærslu.
Nú fallast B,D og H-menn í faðma og horfa á sólarlagið út yfir Lagarfljótið kinn við kinn, með nefklemmur sínar, sinn með hverjum pólitíska litnum og hverfa saman inn í fortíðina í skólpmálum. Mikil blessun það.
Til hamingju með samsuðuna kæru Héraðsbúar. Þið völduð 26. maí sl. og sitjið uppi með gerðan hlut næstu fjögur árin.
(Ath D-listinn fékk Á-nauð, þ.e. Á-listinn skreið upp í til fóta, - eða var það öfugt?)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2018 | 19:45
Man þá tíð, þegar Kaupfélögin tóku fé út af reikningum bænda....
...vegna áskriftar á dagblaðinu Tímanum. Bændur fengu blaðið sent hvort sem þeir vildu eða ekki. Kaupfélagið tók svo samviskusamlega út af reikningum bændanna og sendu til útgáfu Tímans.
Mér sýnist sami leikurinn vera í uppsiglingu vegna efnis úr Vaðlaheiðagöngum, sem þeir hafa lagerað inn á lóð annars.
Greinilegt að sagan endurtekur sig.
![]() |
Gangamenn lent í ótal óvæntum aðstæðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.6.2018 | 21:18
Þýðir MeToo.......
..að þið ætlið líka að stríplast á almannafæri? Hvaða skilaboð eru þið konur að senda frá ykkur? Ef þið konur viljið vera berar að ofan, þá er það meinalaust af minni hálfu. Sérkennilegt samt, að þurfa í hvert sinn að kalla til fréttamenn.
Ef fimm skeggjaðir menn með jólasveinahúfu ganga um Austurvöll, þá freistast karlmaður til að horfa á hópinn. En, - ef sá sami gjóar augum á berbrjósta konur á almannafæri, er hann samstundis litinn hornauga fyrir einkennilegar hvatir.
Hvernig ber að skilja að ljósmæður þurfi að ganga í gegnum píku á fund sáttasemjara? Þurfa þær ef til vill stærri píku, til að ná betri samningum, til að ganga um á leið sinni á samningafund?
Konur er að búa til ljóð um píkur, vefa listaverk af píkum og nú síðast liggur norsk listakona nánast nakin á borð og kallar það list eða gjörning.
Mundi það verða leyft á hinu háa Alþingi, að teknar væri myndir af ungum mönnum í kýl?
Ágætu konur. Þið verðið að fyrirgefa mér. Ég er ekki að skilja ykkur og þessa sérkennilegu framsetningu ykkar. Sérstaklega ruglar hún mig í ríminu í ljósi MeToo bylgjunnar, sem mér finnst gjaldfalla við slíkan fífagang.
![]() |
Berbrjósta á Alþingi með góðfúslegu leyfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2018 | 12:50
Er Jens Garðar með ríkisstjórnina í vasanum?
Hef grun um að stjórnendur Fjarðabyggðar leggi enn ríkari áherslu á að göng til Seyðisfjarðar verði tengd Fjarðabyggð, eftir niðurstöðu kosninga um vilja Seyðfirðinga til að sameinast Héraði. Nú er komið að ögurstund Sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð að rústa því.
Á sínum tíma voru ráðamenn í Fjarðabyggð á móti "Samgöngum" og eru nú búnir að missa af lestinni. Þeir virðast hins vegar ekki ennþá vera búnir að átta sig á því, en hugsanlega getur pótitíkskur tengibúnaður snúið þessu Fjarðabyggð í vil, jafnframt því að vinda hressilega upp á ráðherra samgöngumála í Framsókn.
Rétt væri að meðfram sveitastjórnakosningunum, yrði kannaður vilji Seyðfirðinga til tengingar með jarðgöngum.
_____________________
Vilt þú að Seyðisfjarðagöng verði gerð:
A Til Héraðs
B Til Mjóafjarðar og Norðfjarðar
________________________
Fjarðabyggð er þeirrar gæfu aðnjótandi, að búið er að taka í notkun Eskifjarðargöng til Norðfjarðar. Til hamingjumeð það. Allir Íslendingar, sérstaklega Austfirðingar, gleðjast innileg með íbúum Fjarðabyggðar, sérstaklega Norðfirðingum.
Ekki eru mörg ár síðan sambærilegt mannvirki var vígt milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.
Það er því miður er ekki hægt að yfirfæra þá gleði á stjórnendur Fjarðabyggðar, þegar kemur að öðrum samgöngbótum í fjórðungnum. Þá virðast öll sund lokast og verkefni verða lítt fýsileg og í flestum tilfellum arfavitlausar framkvæmdir, að mati þeirra. Þeir eru að vísu nokkuð einangraðir með þá skoðun, en eru á hinn bóginn handvissir um að allir sérfræðingarnir í samgöngumálun Íslands, - sitji í Fjarðabyggð.
Fáráðnlegt er að halda því fram að þeir séu á móti vegabótum. En þær verða klárlega að koma Fjarðabyggð til góða á einn eða annan hátt, sérstaklega litlu Moskvu. Því kemur það ekkert sérlega á óvart, þegar rætt er um bættar samgöngur um Öxi eða jarðgöng til Seyðisfjarðar, að sérfræðingarnir í Fjarðabyggði umhverfist og séu á öndverðu meiði við aðra á Íslandi.
Sérstakleg er athyglivert, hve þeim er óskaplega í nöp við þann fjölda, í öðrum austfirskum sóknum, sem eiga allt undir bættum samgöngum til Héraðs.
Því kveður Egill rauði:
Götur vilja bæir byggja
og bæta líf í gleði og sorg
En allar leiðir skulu liggja
lóðbeint heim á Rauðatorg
![]() |
Seyðfirðingar vilja lifa lífinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2018 | 21:18
Nú erum við að tala saman, eða......
...er eingöngu verið að tala um stærri Fjarðabyggð?
Erum við tilbúin að taka þetta alla lelið, - eitt sveitarfélag???
Gaman væri að fá eitthvað að heyra um það frá frambjóðendum á Austurlandi.
Kveðja "All the way, - Austurland-city"
![]() |
Austurland myndi sterka heild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.5.2018 | 18:19
Er Gunnar Gunnarsson fær um að vera hlutlaus??
Ekki kannast ég við að það sé hroki ganvart Fljótsdalshreppi, en menn furða sig gjarnan á því að ekki skuli þeir sameinast öðrum innan fjallahringsins.
Gæti það verið að þeir hafi það svo gott í skjóli Landsvirkjunar? Spyr sá sem ekki veit.
Ég hef talsverða sannfæringu fyrir því, að ef ekki hefði verið reist stífla við Kárahnjúka og byggt orkuver í Fljótsdalshreppi, þá væri búið að sameina.
Gunnar Gunnarsson er borinn og barnfæddur Fjótsdalshreppingur og verður í því samhengi að lesa það sem eftir honum er haft.
![]() |
Sameiningarmálin verði stór |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2018 | 23:19
Ekki eru allir að keyra á malbiki á láglendi.
Þetta er magnað að taka síendurtekið einn fyrir og reyna að gera tortryggilegan. Nú er röðin komin að Ásmundi.
Þegar verið er að aka á mjóum, holóttum vegum í krapa og snjó um holt og heiðar, þá eyðir bifreið mun meira eldsneyti en á þurru malbiki á lálendi.
Kvartað er undan þingmönnum sem vanrækja kjósendur sína milli kosninga.
Nú er kvartað undan því að hann eyði of miklu púðri í kjósendur sína.
Hver er hin gullna regla?
Er ekki heppilegt að vera í góðu sambandi við grasrótina?
Hann sækir vinnu sína á þingi og mætir á nefndarfundi?
Er hitt ekki utan skilgreinds dagvinnutíma?
Er einhver, sem er að gagnrýna Ásmund, tilbúinn að vinna kauplaust í aukavinnu?
Hefur einhver pælt í því?
![]() |
Telur fréttaflutning jaðra við einelti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.2.2018 | 17:16
Hvað eru Sjálfstæðismenn ekki að skilja?
Fundurinn var boðaður fyrir fulltrúa í borgarstjórn og þingmenn kjördæmisins.
Eyþór Arnalds er hvorugt.
Hvað er svo erfitt að skilja í þessu samhengi?
Á þokkalegri íslensku nefnist þetta bara hjá Sjálfstæðismönnum í borginni; - yfirgangur og frekja.
![]() |
Sætið var ætlað forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2018 | 20:40
Klukkuþrælar halda að Gregoríska tímatalið sé náttúrulögmál.
Gregoríska tímatalið var tekið upp á Íslandi árið 1700 og gildir enn. Þetta tímatal er mannanna verk, ekki náttúrulögmál. Hvar er hægt að finna það að líkamsklukkan þurfi tengingu við Gregoríska tímatalið? Er líkamsklukkunni ekki nákvæmlega sama hvort klukkan stendur á 12, 13, 14, 144 eða eitthvað allt annað?
Þar sem klukkunni er breytt, fer stór hluti samfélagsins úr skorðum vegna þess að fólk er utan við sig og fylgist ekki nægjanlega með. Það er að mæta á vitlausum tíma í vinnuna, skólabörn ruglast í ríminu, samgöngukerfin fara úr skorðum, svo eitthvað sé nefnt.
Þeir sem eru svona þjakaðir af þessum tímamismun ættu frekar að beina kröftum sínum að því að koma á sveigjanlegum vinnutíma og uppfæra samninga í samhengi við það. Það á ekki vera trúarathöfn að vakna klukkan 08:00 og mæta í vinnuna klukkan 09:00 þegar hægt er að fara á fætur klukkan 07:00 og vera komin í vinnustöð klukkan 08:00. Á mörgum vinnustöðum er mjög auðvelt að vera með breytilegan vinnutíma á meðan aðrir vinnustaðir geta það ekki. En það er hvort eð er ekki hægt gera svo öllum líki.
Vandamálið með háttatíma er fyrst og fremst óhæfum foreldrum að kenna. Krakkar sem eru liggjandi í i-Padinum langt fram á nótt, geta ekki sofnað eðlilega. Þau eru búin að rugla heilastarfsemi sína með því að glápa á skjáinn. Heilinn heldur að það sé hábjartur dagur og hagar sér eftir því. Ráðið að foreldrar girði sig í brók og taki i-Padinn af krökkunum í síðasta lagi 22:00.
Best er fyrir klukkuþrælana að búa í gluggalausu rými og stilla klukkuna eins og þeir vilja og hafa dag og nótt eftir sínu eigin tímatali. Þetta var gert við hænur til að auka nytina úr þeim, að stytta tímann á milli birtu og dimmu til að láta þær verpa tvisvar á sólahring.
![]() |
Leggja til að klukkan verði færð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2018 | 23:38
Hvers vegna heitir Hvassahraun, - Hvassahraun?...
...Er það vegna þess að þar er alltaf logn?
Annað kemur upp í hugann. Er alltaf til peningar til að skipa nýjar og nýjar nefndir?
Dettur í þessu samhengi í hug sagan af manninum sem vildi fara í golf, en konan vildi fara og heimsækja ættingja austur fyrir fjall.
- Já og hvernig leystir þú málið? spurði vinur hans á golfvellinum.
- Ja, sko, við hjónin köstuðum upp á það, sagði kunninginn
- Ég sé að þú vannst í þetta sinn.
- Það gekk nú ekki þrautalaust, ég varð að kasta upp á því nítján sinnum.
------------------
Hin hliðin á flugmálum Íslandssögunar er all sérstök. Fyrir utan hve sammála menn eru að byggja upp Keflavíkurflugvöll, er annað upp á teningunum þegar kemur að hinum flugvöllunum. Reykjavíkurflugvöllur einn sker sig úr og er óvelkominn innan hreppsmarka borgarinnar nú um stundir a.m.k., öfugt við flugvelli á landsbyggðinni. Þar vilja allir fá einn til sín, helst millilandaflugvöll, ef flugtíðnin innanlands fer upp fyrir fimm ferðir í viku. Þá gildir það eitt að sá fær sem hæst bylur.
Merkilegt er svo að verða vitni að því að ekki er til fjármagn til að klára það sem þó er komið í fullan rekstur. Viðhald er með því móti, að forstjóri ISAVIA hefur gefið það út, að með þessu áframhaldi þarf að loka flugvöllum, sem eru í bullandi rekstri, vegna vöntunar á fjármagni við að sinna eðlilegu viðhaldi. Ljóst er, að ekki sé hægt að endurnýja nauðsynlegan aðflugsbúnað og gera við flugbrautir svo ekki sé minnst á aukið mannahald á flugvöllum landsbyggðarinnar.
Hvernig stendur á því að stefnu vantar í ríkisrekstri. Þetta á ekki við um flugvelli eingöngu. Sjúkrahús eru í vandræðum, löggæslan á heljarþröm, svo eitthvað sé nefnt.
Það er áberandi að hvergi er hægt að forgangsraða af neinu viti. Það er verið að taka upp allskonar greinar frá ESB, en svo fylgir gjarnan böggull skammrifi. Flestar greinar kosta nefnilega peninga. Hlaupið er blint eftir tilskipununum, án þess að átta sig á því að það kostar og það enga smáaura. Sjaldnast er reynt, hvað þá meira, að fá undanþágur vegna aðstæðna, þó þau gefi fullt tilefni til þess vegna legu Íslands.
Aftur að fluginu. Þó ég sé ekki hrifin af nefndafargani, tel ég einsýnt að kjósa verði þverfaglegan starfshóp, til að fara ofan í sumana á flugmálum íslendinga. Þessi nefnd þarf að vera skipur erlendum sérfræðingum, sem geta hlutlaust horft yfir sviðið og gert sitt mat á þörfinni fyrir flugvöll. Skoða þarf aðstæður í landslaginu (fjöll og aðrar hindranir), hvar sé vit í að koma fyrir ILS-aðflugsbúnaði og fara ofan í saumana á veðurfarslegum þáttum, þannig að sem fæstir flugvellir verði á sama veðursvæðinu.
Því fyrr sem Alþingi tekur sér tak og skipar slíka nefnd, því heppilegra umhverfi fáum við í flugmálum og fjármunum verður varið þannig, að þeir skili sér í lágmarks rekstrarkostnaði fyrir samfélagið allt.
![]() |
Fullkanni flutning í Hvassahraunið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)