RUV klippa. Steingrímur J. var eins og Pétur postuli - - -

...sem neita áður en haninn gól þrisvar, þegar sá síðarnefndi kannaðist ekkert frelsarann.

Sá fyrrnefndi gól nei þrisvar áður en Sigmar gat borið fram fyrirspurnina um kærleikassamband SJS við ESB.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Pelli þetta viðundur er ekki hvorki ráðherra lengur né nýtur þess að vera forseti alþingis Íslendinga í skjóli sjálfstæðis- og framsóknarmanna, hann er ekki einu sinni á þingi.

Nú nýtur lygamörðurinn margfaldra eftirlauna á kostnað þjóðarinnar. Ef þú birtir þennan ófögnuð einu sinni enn á síðunni þinni þá hætti ég  líta hér inn.

Magnús Sigurðsson, 14.12.2021 kl. 18:48

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Biðst forláts Magnús.  Ég lofa upp á ær og trú að gera þetta ekki aftur og ég stend við það.

Mér fannst hinsvegar rétt að rifja upp vinnubrögð VG því þau eru enn í sama skítuga skófarinu.

Svo rammt kveður að þessu, að Vinstri-græna Jódís úr Hjaltastaðaþinghá þarf grátbiðja Vinstri-grænu Katrínu flokksformann sinn, úr ræðupúlti Alþingis, að fara nú að gera eitthvað af því sem Inga Sæland er að kalla eftir fyrir eldri borgara og öryrkja.  

En, - Vinstri-græna Katrín situr enn föst við sinn keip og haggast ekki.

Benedikt V. Warén, 14.12.2021 kl. 21:16

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sú flissandi á eftir að skipa margar nefndir og rýnihópa áður en hún á það samtal við alþingi að fjárveitingar til þessa málaflokks hafi stórhækkað undanfarin ár, þær fóru bara allar í að yfirstjórnin næði yfirsýn yfir málaflokkinn.

Líttu bara á Landspítalann. Furðulegt ef Jódís hefur ekki áttað sig á þessu verklagi.

Magnús Sigurðsson, 14.12.2021 kl. 21:25

4 Smámynd: Benedikt V. Warén

Vinstri-græna Jódís áttar sig fyrir rest, að hún veðjaði á rangan hest.

Hún væri klárlega betur sett, hjá Ingu Sæland.

Benedikt V. Warén, 15.12.2021 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband