Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
13.10.2023 | 17:20
Fyrsti þingmaður N-Austurlands sér ekki austur fyrir Vaðlaheiði
Þimgmenn N-Austurlandskjördæmi eru kosnir til að sinna öllu kjördæmi sínu. Njáll Trausti Friðbertsson er hinsvegar eingöngu þingmaður Eyjafjarðar, svo því sé haldið til haga.
Fyrir alþingiskosningar 2021 sást hann nægilega lengi á Egilsstaðaflugvelli að það næðist af honum mynd. Það var samskonar tilviljun og að ná mynd af vigahnetti yfir heimskautagerðinu á Raufarhöfn.
Þegar þyrla verður staðsett á landsbyggðinni eru mun sterkari rök fyrir því að velja Egilsstaði.
Það hefur verið sýnt fram á að svæði, sem þyrlur ná yfir er mun víðfermara með að velja Egilsstaði en Akureyri, vegna þess að ávallt mun þyrlusveit vera staðsett Reyklavík og því næst með staðsetningu þyrlu staðsettir á Egilsstöðum.
Lesa má nákvæma greiningu á þessari slóð.
https://pelli.blog.is/blog/pelli/entry/2264892/
Þetta veit Njáll Traust mæta vel, en hann velur að stinga þeim rökum undir stól. Stuðningsmenn hans á Austurlandi eru þvílíkar lufsur að láta þessi vinnubrögð þingmannsins yfir sig ganga trekk í trekk.
![]() |
Þörf á sjúkraþyrlu á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2023 | 19:51
Ráðherrastóladrama. Hver er hvurs og hvurs er hvað?
Flottur samkvæmisleikur er stólaskipti, sem felst í því að ganga í hring eftir einhverju lagi, t.d. Ég er heimskasti hundur í heimi. Þegar lagið er stoppað, setjast allir niður nema einn, vegna þess að stólarnir eru einum færri en þátttakendur.
Afbrigðið í þessum leik er Alþingisfloppið þar sem stólarnir eru jafn margir og ráðherrarnir og stundum fleiri, ef einn kandídat hefur lengi nagað þröskuld ráðherraklíkunnar. Þannig má lækka fýlustuðulinn hjá einhverjum, sem fær boð í partíið.
En svo er náttúrulega flottasta plottið í skotlínunni. Það væri að Bjarni Benediktsson biði Svandísi Svavarsdóttir stólaskipti.
VG fengi þar með óheftan aðgang að ríkiskassanum, til að halda uppi velferðakerfi ólöglegra hælisleitenda á kostnað öryrkja og eldri borgara og XD næði að lempa Kristján Loftsson og útgerðamenn hringinn í kringum landið.
Þetta steinliggur og allir hamingjusamir, - eða??
![]() |
Axlar ekki ábyrgð með því að skipta um stól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.8.2023 | 18:14
Þetta er ekki vandamál bara verkefni að leysa
Starfsmenn Flugmálastjórnar gróðursettu megnið af umræddum trjám ef ekki öll. Framsýnin var algjör. Þð var ekki einu sinni búið að finna upp orðið "KOLEFNASPOR".
Mér er til efs að leyfi hafi fengist fyrir þessum gjörningi á sínum tíma. Væntanlega er það kirfilega skjalsett í gögnum Reykjavíkurborgar. Ef ekki er til leyfi, hvar eru menn þá staddir. Hvað er gert við ólöglega og ósamþykkta framkvæmd? Er hún ekki fjarlægð samkvæmt byggingasamþykktum Borgarinnar?
Lausn er þó til, sem áður hefur verið viðruð og standa áhugasamir og borgaryfirvöld frammi fyrir því að verðmeta téðan trjálund á móti öðrum lausnum.
Það hefur lengi loðað við landann að líta tré sömu augum og Indverjar líta þarlendar kýr, sem náttúrulega kallar á alveg sérstaka sálfræðilega lausn þeirra sem við þá fóbíu glíma. En það verður ekki reynt að leysa hér.
En þá snúum við okkur að áðurnefndri lausn og því hvort hún sé á ásættanlegu verði til að koma útivistafólki í Reykjavík til bjargar, - sálrænt. Það má vissulega leggja nokkuð á pyngju Borgarinna til að svo megi verða.
Lausnin er að setja Suðurgötuna í stokk og lengja flugbrautina út á Kafteinsnef sem skerðing á hinum endanum nemur.
![]() |
Dagur tjáir sig um trén í Öskjuhlíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2023 | 16:15
Tilviljunin og tungurnar þrjár
Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, opnaði sig nýverið og mjög óvænt um jarðgöng á Austurlandi og fjallaði þar um að rétt væri að allar framkvæmdir við jarðgöng ættu að eiga sér stað með strönd Austurlands t.d. með að tengja saman Norðfjörð, Mjóafjörð og Seyðisfjörð. Ekki er hægt að merkja að hann hafi sérstaklega sett sig inn í samþykktir sveitastjórna liðinna ára á Austurland. En merkileg tilviljun var að hann skildi færa þetta í tal á þessum tímapunkti. Eða var það ekki tilviljun? Auðvita veltir maður því fyrir sér. Formanni Sjálfstæðisflokksins barst fjöldi stuðningsyfirlýsingar við f.v. dómsmálaráðherra vegna ráðherraskiptanna. Þar vakt ein sérstaka athygli. Hefur Bjarna meðal annars borist áskoranir frá Sjálfstæðismönnum í Fjarðabyggð.
__________________________
Fyrir stuttu benti ég á að ríkisstjórn Íslands hefði tungur þrjár og talar sitt með hverri. Það á sérstaklega við þegar kemur að því að standa við gefin fyrirheit um jarðgöng undir Fjarðaheiði til að tengja Seyðisfjörð við Múlaþing í framhaldi af sameiningu fjögurra sveitarfélaga árið 2019.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur undanfarið leitað logandi ljósi að ástæðu til að réttlæta sleifarlagið er varðar Fjarðarheiðagöng til Seyðisfjarðar og ítrekuð svik ríkisstjórnarinnar við íbúa Múlaþings í því máli. Til þess að reyna að rétta kúrsinn á ríkisstjórninni, var gerður út leiðangur sveitastjórnar í Múlaþingi til að freista þess að fá skýr svör og til að brýna ríkisstjórnina til að standa við gefin fyrirheit.
Formaður Framsóknarflokksins gaf færi á samtali við sendinefndina, m.a. vegna þess að forseti bæjarstjórnar í Múlaþingi er samflokksaðili1 innviðaráðherrans og ljóst að hann getur í þriðju kosningu í röð endurnýtt gömul kosningaloforð. Það dugði forseta bæjarstjórnar í Múlaþingi og hvarf hún við svo búið til síns heima.
Þegar kom að formanni Sjálfstæðisflokksins að ræða við fyrsta varaforseta í Múlaþingi og samflokksaðila1 fjármálaráðherrans, boðaði hann í skyndi forföll. Hvað er brýnna en samtal við ráðamenn sveitastjórna á landsbyggðinni? Er hægt að niðurlægja flokksaðila sinn meira? Flokkssystir fjármálaráðherra er virkur varaþingaðili1 Austurlands og hefur ítrekað setið á Alþingi í forföllum annarra þingaðila1.
Er hægt að niðurlægja kjörinn fulltrúa meira? Hugsanlega! Með því að lofa ítrekað framkvæmdum og standa síðan ekki við þau gefnu fyrirheit!
_________________________________________________________
1 Aðili = maður, sem þó er ekki endilega karlmaður. "Maður" hefur þótt gott og gilt heiti um aldir, þar sem maður er skilgreind tegund og skipist í undirflokkinn kona eða karl eftir sérstöðu þeirra í að viðhalda tegundinni.
24.6.2023 | 19:57
Grein 3. S-beygjur sveitarstjórnar Múlaþings
Flest sveitarfélög vinna að því að þungaflutningar og umferð, sem ekki á beinlínis erindi inn í bæjarfélög, hafi greiða leið í jaðri byggða. Það er ný nálgun og nútímaleg öfugt við fortíðina þegar pósturinn var miðlægur í þorpum og bæjum ásamt því að þar var kaupfélagið með sínar höfuðstöðvar og verslun. Það hefur líklega farið fram hjá framsóknarmönnum á Fljótsdalshéraði að hér er ekki lengur rekið kaupfélag og því þarf ekki að gæta hagsmuna þess sérstaklega.
Borgarnes er eitt þeirra sveitarfélaga, sem þótti vont að umferðin væri ekki um miðbæ sveitarfélagsins. Miklu var fórnað til þess að svo mætti verða og verslun blómgaðist við brúarsporðinn, því er ekki að neita. Nú er öldin önnur og ný sjónarmið vega þyngra á vogarskálum íbúanna og umferðaröryggi þeirra hefur öðlast meira vægi. Nú er verið að vinna nýtt skipulag í Borgarnesi og koma þungaflutningum í jaðar sveitarfélagsins.
Nærtækt er að skoða hvernig vegurinn á Reyðarfirði var lagður með ströndinni í stað þess að liggja inni í bænum endilöngum. Sama hugsun er í fleiri nútíma sveitarfélögum, sem vinna í samstarfi við íbúana. Hafa ber í huga að flutningabílar hafa stækkað og heildarþungi þeirra vaxið á undanförnum árum og hafa skapað ný viðmið. Ferðatíðni þeirra hafa þar að auki margfaldast. Orsökin er að neyslusamfélag okkar gerir sífellt meiri kröfur til vörumagns og vöruflokka, sem aftur kallar á örari flutninga til að fullnægja þörfinni. Endurbætur á vegakerfinu ná ekki að fylgja eftir neysluvæðingu samfélagsins.
Á Egilsstöðum hefur í mörg ár verið krafa um að minnka umferð í miðbænum, en ekkert hefur áunnist í þeim málum og ráðamenn Múlaþings átta sig ekki á að öryggi íbúanna sé í húfi. Þeir átta sig ekki heldur á þörfum atvinnulífsins um gott flæði um atvinnusvæðin með skriðþunga farma. Meirihlutinn ætlar jafnframt að hunsa skoðun 64% íbúa sveitarfélagsins, sem tóku afstöðu á Fljótsdalshéraði með norðurleiðinni.
Iðnaðarsvæði við Lyngás er gott og gilt, en verður ekki þar tugi ára í viðbót. Svæðið gæti hentað undir blandaða byggð, verslun og þjónustu til framtíðar og því er nauðsyn að skipulag sé lifandi plagg, án þess að taka dragstískum breytingum eftir dagsformi forseta bæjarstjórnar.
Sigurður Ingi Jóhannsson er sá ráðherra, sem hefur undanfarin ár sett ný viðmið hvað telst vera sannleikur. Ítrekað hefur hann riðið um sveitir landsins með digurbarkaleg loforð, sem síðan reyndust ígildi gúmmítékka. Nægir þar að nefna nýframkvæmdir austan lands við Egilsstaðaflugvöll, Fjarðarheiðargöng og veg yfir Öxi. Nú ná loforð hans nýjum hæðum og ná langt inn á verkefnalista komandi ríkisstjórna.
22.6.2023 | 15:17
Bönnum innflutning rafbíla
Það er alveg magnað hvað hægt að vera syngjandi ruglaður í náttúruvernd. Það er á stefnuskrá stjórnvalda að nýta græna orku til að drífa farartæki inn í framtíðina, en svo furðulegt sem það hljómar, má helst ekki framleiða orkuna með vatnsorku.
Hópur sjálfskipraðara vitringa í hreinorku eru eins og hoppandi kjúklingar á skítahaug, einn hoppar og hinir herma eftir alveg án þess að vita af hverju. Þessir skíthopparar leggjast gegn því að flytja orku á þrjátíu metra háum möstrum á milli staða vegna sjónmengunar, en finnst það er í lagi að byggja tvöhundruð og fimmtíu metra háa vindmylluskóga hist og her um landið.
Í þeirra huga er allt að því skaðlegt nýta vistvæna endurnýjanlega vatnorku, án þess að rökstyðja hvers vegna.
https://www.si.is/frettasafn/urskurdur-um-hvammsvirkjun-vonbrigdi
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, segir í hádegisfréttum Stöðvar 2 á Bylgjunni um úrskurð þess efnis að virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar hafi verið fellt úr gildi grafalvarlegan. Hann er auðvitað fyrst og fremst vonbrigði svona í ljósi þess að við þurfum á meiri grænni orku að halda á Íslandi. Stjórnvöld eru auðvitað með mjög skýr og háleit markmið til að mynda um orkuskipti. Við þurfum á orku að halda fyrir framtíðaruppbyggingu í atvinnulífi og svo framvegis. Það tók Orkustofnun 19 mánuði að afgreiða umsókn Landsvirkjunar um virkjanaleyfi. Umsóknin stendur enn þrátt fyrir niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar en það gæti tekið langan tíma að uppfylla þau skilyrði sem nefndin setur og á þessari stundu óvíst hvort það er yfirleitt hægt.
Greinilegt er að Ísland, með umræddan þrýstihóp, er kominn á þann stað að það þarf að skera niður orkusjúgandi gæluverkefni.
Þá er nærtækast að byrja á að banna allan innflutning á rafbílum.
20.6.2023 | 17:56
Fallin með fjóra komma níu.
Ef Sjallarnir kyngja þessu, þá eru þeir heimsmeistarar í að hanga á ráðherrastólunum.
Já, - ráðherrastólasúperglue heldur, það alveg rígheldur.
![]() |
Nauðsynlegt vegna afgerandi niðurstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.6.2023 | 00:03
Launaskriðasirkusinn
Væri ekki rétt að ráðherrar og þingmenn fengju umsamda prósentuhækkun almennings að frádreginni prósentustigi verðbólgunnar?
Þá væri núna verið að tala um 4% launalækkun, eða þar um bil.
Launahækkun - Verðbólga = launahækkun/launalækkun (6%-10%= -4%) Hver er þá hinn napri veruleiki?
Hverjir eru í aðstöðu til að slá eitthvað á verðbólguna? Þarf ekki að axla ábyrgð á Alþingi?
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, virðist sannfærður um að það sé meiri raunlækkun launa þeirra, sem hafi hærri tekjur en almúgans.
Gaman væri að vita hvaða reiknikúnstum er beitt til að fá þá niðurstöðu.
![]() |
Almenningur ákveði laun þingmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2023 | 13:27
Fordæmalausir tímar
Ríkisstjórnin biðlaði til þjóðarinnar um að standa saman vegna Covid-19
Ríkisstjórnin biðlaði til allra vegna stríðsins í Úkraínu
Ríkisstjórnin treystir á að Seðlabankinn lækki verðbólguna
Hvað ætlar ríkisstjórnin sjálf að gera?
Taka fegins hendi við kauphækkun þann 1.6.2023 fyrir vel unnin störf í þágu lands og þjóðar.
31.5.2023 | 09:11
Jarðgangastoppið
Það er náttúrulega alveg galið að ekki skuli vera að vinna við ný jarðgöng.
Að stoppa við að gera jarðgöng er eitthvað sem ekki á að eiga sér stað vegna þess að við þurfum að hafa þessa sérfræðinga innanlands í verkum en ekki missa þá úr landi vegna skipulagsleysis í samgöngumálum.
Allar samgöngubætur eru til bóta, ekki síst til að róa niður loftslagssöfnuðinn.
Það er ekki svo lítið mál.
![]() |
18 jarðgöng koma til greina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |