Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

Hræsni?

Mundu olíufélögin vera til í að styrkja Mæðrastyrksnefnd um eina krónu á hvern seldan líter, í einhvern tíma?
mbl.is Örtröð á bensínstöðvum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tollmúrar, flugvallaskattar og veggjöld.

Það ætti öllum að ljóst vera, að nú þegar verið er að setja tollmúra á láði, legi og í lofti til Reykjavíkur, er markvisst verið að segja okkur landsbyggðarmönnum það, "...ef þið eruð eitthvað að vilja til Reykjavíkur, - þá, versgú kostar það."

Samfylkingin og vinir Múmínálfanna eru að skerpa það, sem löngum hefur verið haldið fram af landsbyggðarmönnu, það búi tvær þjóðir í þessu landi. 

Ofuríbúarnir, húsbændurnir, sem vinna lítið og sukka fram á nætur, berja mann og annan milli þess sem þeir fara í bankana og tæma þá eru þeir sem búa í Reykjavík. 

Hinir eru þeir sem vinna á landsbyggðinni, leggja fé í bankana en hefur lítið sem ekkert um þjóðmálin að segja og fráleitt að sá hópur hafi vald til að nýt þeirra fjármuna, - sem hún þó aflað.

Nú er komið að þeim vendipunkti, að það verður að gefa upp á nýtt í fjármálageiranum.  Fjármununum verði hér eftir ráðstafað þar sem þeirra er aflað, þ.e. framkvæmdavaldið fært til fólksins, sem vinnur í sveita síns andliti, án milligöngu bankaræningja í Reykjavík.

Það  má síðan hugsa sér að Íslendingar gefa Reykjavík frelsi, gera það að einskonar Vatikani Íslands, þar sem innmúraðir einir fá inngöngu og geti þar af leiðandi haft hlutina rétt eins og þeir vilja. 

Hugsanlega verður hægt á seinni stigum, að koma á vinabæjarsambandi, eftir að slíkt samband hefur að fullu verið frágengið við Múminland.
mbl.is Segja borgaryfirvöld ekki hafna veggjöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki rétt að senda Halldór.....

...til Bretlands og láta hann útskýra fyrir þeim að Íslendingar hafa ekkert rangt gert og láta hann benda þeim góðfúslega, á að allt sem var gert vegna ICESAVE sé löglegt og engin lög hafi verið sniðgeengin né brotin hvorki af hálfu stjórnenda Landsbanka né annarra íslendinga. 

Manni, sem er svona ofsalega saklaus, ætti ekki að verða skotaskuld úr því að skýra þetta út fyrir Bretum og Hollendingum, - ef hann á annað borð væri svo vænn að skreppa yfir pollinn.

mbl.is Halldór yfirheyrður áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á meðan Ísland brennur á fjármálabálinu....

...funda Vinstri Grænir og innan eigin raða, höggva þeir mann og annan.

mbl.is Átök í VG ekki í rénun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið skelfing er nú gott að þurfa ekki að sitja undir þessu.....

....eins og HM sl. sumar þegar lýsingar ruddust yfir alla hefðbundna dagskrá RÚV.  Það hefði í sjálfu sér verið hægt að þrauka það, ef ekki hefði í beinu framhaldi þurft að kryfja hvern leik í smáatriðum.  Láta áhorfendur taka leikinn inn teskeið, - hvern einasta leik.

Það var einn sem leiddi hópinn með þrjá til reiða.  Þar var leikurinn sýndur aftur á bak og áfram til þess að reyna að koma því endanlega inn í hausinn á þeim, sem voru rétt að ljúka við að horfa á leikinn, hvað var í raun að gerast þessar níutíu mínútur þar á undan.  Er von að maður freisitist til að halda, að þeir sem horfa of mikið á íþróttir séu ekki  með öllum mjalla.

Það er mikið lagt á 90% þjóðarinnar að þurfa að sitja undir þessu íþróttaböli, til að fullnægja þörf hinna 10% sem eru þjákaðir af íþróttabakteríunni.  Þess vegna er þetta fín lausn, sér rás fyrir íþróttir.
mbl.is Stórsigur á Japan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórir lögfræðingar

Einkennilegt að fjórir lögfræðingar átti sig ekki á því, að ef Bretar og Hollendingar væru vissir í sinni sök og teldu sig með unnið mál, væru þeir löngu búnir að kæra. 

Þessar þjóðir hafa farið fram með ofbeldi hingað til og ekki hikað við það.  

Það að Bretar skulu ekki hafa farið fram gegn okkur með meira ofbeldi, en að beita hryðjuverkalögum, segir manni bara eitt; - þeir hafa ekkert til að byggja sókn sína á. 
mbl.is Skiptar skoðanir lögfræðinga um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sé ekki hvað er að því að kanna svæðið....

.... því það hlýtur að vera akkur í því að vita hvað leynist í iðrum jarðar á þessu svæði svo sem annarsstaðar.  Þá fyrst er hægt að setja verðmiða á svæðið.  Á að friða eða nýta?  Hvor leiðin er þá veðmætari? 

Búið er að raska svæðinu og ransóknir á því breyta litlu, nema meiri vitneskja fæst.  Sé ekki annað en að það sé af því góða að vita hvað leynist undir yfirborðinu ekki síður en ofan á því.  Náttúrusinnar meiga ekki vera svo forstokkaðir að ekki megi auka við þekkingu á náttúrunni neðanjarðar. 

Annað mál er síðan að virkja.  Eflaust er hægt að nýta svæðið með skáborun, eða annarri tækni síðar.  Ekki þarf að ráðast í framkvæmdir nú þegar.  Tækifæri gefst á að ná áttum og jafnvel sátt í hvaða svæði landsins á að nýta og hvaða svæði á eingöngu að njóta eingöngu.

Mannvirki geta, ef svo ber undir, verið neðanjarðar í jaðri svæðis til að sjónmengunin verði sem minnst.  Það getur varla skaðað ímyndina að nýta það sem ekki sést, ég tala nú ekki um að nýta það sem enginn hefur áhuga á að kynna sér.  Það er væntanlega verðlaust í huga þess sama hvort eð er. 
mbl.is Fagna afstöðu Landsvirkjunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með mótvægisaðgerðir.....

.....eins og krafist við Kárahnjúkana.   Hvar eru nú allir vitringarnir sem tjáðu sig um það verkefni og höfðu svo mikla samúð með okkur á Fljótsdalshéraði, að það lá við að maður klökknaði.


mbl.is Svifryk yfir heilsuverndarmörkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkaðir skattar VG.....

....leiða til til þess að ferðaþjónustan dregst saman, þvert á væntingar þeirra um annað.  Þetta virðast allir sjá, - nema ráðgjafar VG.
mbl.is Húsbílagjald hækkaði mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórðungssjúkrahúsið fyrir handan....

....við Oddskarðið, frá okkur séð (Norðfirðingar undanskildir).  Þangað þurfa austfirðingar að sækja.  Því verður enn og aftur að leggja þunga áherslu á þörfina að koma vinnu af stað við ný jarðgöng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar.  Í framhaldi af því undir Eskifjarðarheiðina ásamt því að rjúfa vetrareinangrun Seyðis- og Vopnafjarðar.

Göng undir Vaðlaheiði meiga bíða til 2025, enda er Víkurskarðið smá hóll í samanburði við fjallvegina á Austurlandi. 

Minni á að Kristján Möller er þingmaður Austurlands einnig. 

Nú er komið að því að hann standi við ítrekuð loforð um að koma þessu verkefni í framkvæmd.


mbl.is Svaf í Oddskarðsgöngum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband