18.8.2009 | 13:50
Hvað get ég sagt?
Þegar ekki stendur steinn yfir steini í þessu samfélagi, verður maður kjaftstopp. Þannig hef ég ekki nennt að viðra skoðanir mínar á málum líðandi stundar. Nú mun ég reyna að taka mér tak og færa eitthvað inn.
Í byrjun ágústmánaðar fór ég í frí til Finnlands, og þá meina ég alvöru frí. Ég las ekki eina einustu blaðsíðu á mbl.is né visir.is og get ekki séð að ég hafi misst af miklu, því þegar ég kíkti þar inn eftir komuna heim var þar sama þvargið og þegar ég fór.
Hvenær á að taka á þeim mönnum, sem eru ábyrgir fyrir því að koma Íslandi í þá klemmu, sem nær ógerlegt er að koma þjóðinni út úr?
Athugasemdir
Var satt að segja farinn að halda að þú værir dauður !
Velkominn til baka í bloggið...........og þvargið.
drilli, 18.8.2009 kl. 15:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.