19.4.2022 | 18:00
Nýr Messías Ríkisútvarpsins?
Það má heita að varla sé fjallað um neitt hitamál á Alþingi, að ekki komi í fréttum RÚV ræðustúfur eins þingmanns, svo fremi að hann hafi tekið til máls um vel fréttalyktandi málefni. Sjaldnar en ekki er viðkomandi þingmaður þefvís um hvað muni rata í fréttir RÚV.
Tilviljun? Nei, - fréttaeðli.
Umræddur þingmaður er fyrrverandi innanbúðarmaður í Efstaleiti og þekkir þar alla afkima og ranghala fyrirtækisins.
- o O o -
Ekki er langt síðan að RÚV var með stöðug innslög um sagnfræðileg álitaefni með ákveðnum einstaklingi. Sá var síðar kosinn húsbóndi þjóðarinnar með heimilisfestu á Bessastöðum.
Tilviljun? Nei, - markaðssetning.
- o O o -
Nú er beðið eftir því hvaða samfélagslega vegtyllu Sigmar Guðmundsson muni hljóta í boði RÚV.
Ja, - maður spyr sig.
Flokkur: Fjölmiðlar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.