Loforð og efndir Sigurðar Inga Jóhannssonar í öryggismálum

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ítrekað talað fyrir því að endurbætur á Egilsstaðaflugvelli séu rétt handan við hornið og tæplega það. Tvö ár eru nú liðin síðan samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra lofaði því að verkið væri að fara í útboð, ekki aðeins það, heldur átti að byggja fyrsta hluta akstursbrautar meðfram flugbrautinni, til þess að liðka fyrir umferð um brautina, og að sá hluti mundi jafnframt nýtast til að leggja flugvélum skamma hríð.

Þannig hafði akstursbrautin tvíþætt áhrif, liðka fyrir umferð loftfara á flugbrautinni, og flýta fyrir að rýma brautina fyrir annarri umferð. Að auki átti sá kostur að vera fyrir hendi að nota akstursbrautina sem stæði fyrir flugvélar þegar ástand lokaði öðrum flugvöllum á Íslandi um stundarsakir. Hugmyndin var góðra gjalda verð og ekki að sjá annað en hún gæti virkað fullkomlega, enda kviknaði hugmyndin heima fyrir.

Nú er loks búið að bjóða út endurbætur á flugvellinum sem felast í því að endurnýja yfirborð brautarinnar. Brautin er orðin mjög varasöm að mati Öryggisnefndar íslenskra flugmanna og flugrekenda almennt. Það voru vissulega mikil tíðindi að nú skyldi standa við stór orð samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og hefja framkvæmdir. En sælan varði ekki lengi hjá áhugafólki um Egilsstaðaflugvöll sem þó er löngu orðið vant því að loforð séu ekki efnd þegar kemur að framkvæmdum á landsbyggðinni. Stóra áfallið var að akstursbrautin var skorin frá verkinu og framkvæmdum frestað um óákveðinn tíma en eins og allir vita getur slík frestun varað í áratugi.

Austfirðingar hafa þagað þunnu hljóði vegna annars flugvallaverkefnis í NA-kjördæmi, sem virðist hafa betri aðgang að ríkiskassanum. Eflaust blöskrar mörgum eyðslan í það verkefni, einkum Austfirðingum. Samkvæmt áætlunum verður, árið 2025, framkvæmdakostnaður við það eina verk kominn í sjö milljarða frá aldamótum talið. Þar er ekki stýft úr hnefa. Ljóst er að digur sjóður er í umsjá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ætti honum ekki verða skotaskuld úr því að koma myndarlega að verkefni um Egilsstaðaflugvöll, standa við gefin loforð, og leggja það fé sem til þarf í Egilsstaðaflugvöll.

Flugvöllinn er einn sá fremsti í flugöryggislegu tilliti á Íslandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það stendur til, -hef ég heyrt, -að keyra öllu efni í malbikið til að endurbæta flugbraut Egilsstaðaflugvallar yfir Lagarfljóðsbrú í sumar. 

Dekkið á brúnni var endurnýjað sælla minninga fyrir tæpu ári síðan, og er í verra ástandi eftir veturinn en það var fyrir endurnýjun, -því sem næst ónýtt.

Hvort brúin lifir endurbæturnar á Egilsstaðaflugvelli af verður að koma í ljós. En sennileg þykir ekki ástæða til að gera nýja brú yfir Lagarfljót fyrr en Austfirðingar þurfa að sækja flug til Akureyrar.

Magnús Sigurðsson, 21.5.2021 kl. 20:31

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Það held ég að sé ekki rétt Magnús. Að það sé hörgull á grjóti á Íslandi hefði þótt saga til næsta bæjar í mínu ungdæmi.

Ég hef heyrt að harkan í grjótinu hér sé ekki nægjanleg, svo það verður flutt mulið inn frá Norgi.

Svo það má slugsa enn um sinn við Lagarfljótsbrúna.

Lagarfljótsbrúin og skipulagsyfirvöld heima í héraði er svo efni í enn einn pistilinn.

Benedikt V. Warén, 21.5.2021 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband