Egilsstaðaflugvöllur. Er hægt að hugsa út fyrir boxið í fraktflugi?

Nú eru skrítnir tímar á landinu, en samt eru tækifæri að láta gott af sér að leiða.  Fiskúflutningur virðist geta gengi án takmarkana og því veltir maður fyrir sér hvort ekki sé rétt að spara tíma og fyrirhöfn, að sækja fiskinn í nærumhverfi þar sem hann er framleiddur í stað þess að trukka honum til Keflavíkur, þ.e. sækja hann beint á Egilsstaðaflugvöll.

 

„Við munum vinna úr stöðunni frá degi til dags og reynum að tryggja að fiskurinn komist á markað,“ segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, spurður um hvort íslenskir fiskútflytjendur, sem nýtt hafa sér fraktflug með ferskan fisk, þurfi að hafa áhyggjur vegna ástandsins í flugsamgöngum heims vegna kórónu-faraldursins." 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Sala á ferskfiski hefur hrunið síðustu daga í Evrópu, fiskverkendur eru að skipta yfir í saltfisk frekar en setja ferskann í flug, síðan er spurning hve lengi þessi lægð varir,  

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 24.3.2020 kl. 15:58

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Sæll Hallgrímur.  Það er verið að fljúga með lax til Ameríku frá Noregi. Við hljótum að geta séð einhver tækifæri þar.

 

„Við erum að troða allt að tutt­ugu tonn­um af frakt í Boeing 767 breiðþot­urn­ar, og nýt­um þá pláss sem ann­ars væri notað und­ir far­ang­ur fólks, enda er mun færra fólk í vél­un­um en áður. Þá erum við að ná að setja 10 tonn af frakt í Boeing 757-vél­arn­ar. Þetta er óvenju­leg staða, en þetta er tvö­falt og þre­falt magn í farþega­vél­um á við það sem ger­ist og geng­ur í venju­legu ástandi. Við höf­um svo bætt reglu­lega inn sér­stöku frakt­flugi til Bost­on í Banda­ríkj­un­um til að flytja það sem kemst ekki í farþega­kerfið.“

 

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/03/25/fljuga_med_trodnar_thoturnar_yfir_hafid/ 

Benedikt V. Warén, 25.3.2020 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband