19.8.2011 | 10:38
Enn og aftur, - það er vitlaust gefið.
Þegar farið er ofan í saumana á kjarasamningnum, er talað að um laun hækki um 30.000 kr. Af þessari upphæð fer um helmingur í skatta, - til ríkisins.
Sveitarfélögin, sem eru að berjast í bökkum fjárhagslega, þurfa því að rétta ríkinu u.m.þ.b. helminginn af þessari hækkun til starfsmanna sinna.
Síðan kemur embættismannakerfið og heimtar að sveitarstjórnarmenn sýni ábyrgð í rekstri. Hverslags rugl er þetta?
Ýtrekað hefur verið bent á að skattakerfið er meingallað. Það er vitlaust gefið. Tekjuskipting sveitarfélaga og ríkis eru í tómu rugli. Sérstaklega er þetta brogað á landsbyggðinni. Þökk sé landsbyggðarþingmönnum allra flokka.
Það er ekki eðlilegt að meirihluti tekna sem aflað er í sveitarfélagi renni úr greipum heimamanna. Kerfið verður að vera þannig, til að jafnræðis sé gætt, að allar tekjur verði eftir í því sveitarfélagi sem teknanna er aflað og síðan greiði hvert sveitarfélag til ríkisins sömu krónutölu miðað við höfðatölu óháð aldri íbúa þess.
Alþingi á að fara með löggjafavaldið og framkvæmdavaldið á að flytjast í auknu mæli til sveitarfélaga.
Á meðan þessi ójöfnuður er við líði, næst enginn vitræn niðurstaða í jafnvægi um byggð landsins og fólksflótti heldur áfram á suðvesturhornið og öðrum sveitarfélögum blæðir til ólífis.
Ekki búinn að gefa upp von | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.