Loftfimleikar í loftrýminu!!

Hvað er verið að verja??  Hver er óvinurinn??  Er meintur óvinur eingöngu á ferðinni á þeim dögum sem NATO þóknast að vera með vélar hér??  Er þetta ekki eitt alsherjar sjónarspil, sem engu máli skiptir??
mbl.is Kostnaðurinn 25 milljónir - ekki 50 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvern ætla Bretarnir að skjóta niður??

Eina yfirvofandi loftárásin í desembermánuði er af hálfu jólasveinsins.  Er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir meðvituð um það.
mbl.is Miklar efasemdir um breska loftrýmisgæslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinar einn og átta.

Ekki veit ég hvað þessir menn eru að gera í ríkistjórn, koma ítrekað af fjöllum. 

Í pontu á Alþingi um páskana í fyrra, þegar verið var að tala um skerðingu barnabóta sagði Árni M. Mathiesen:

"Drengir, - sjáið þið ekki vesluna". 

Eflaust hefur hann verið blindaður af útrásinni þegar þessi gullkorn hrutu af vörum fjármálaráðherrans. 
mbl.is Ráðherrarnir koma af fjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skekkt samkeppnisstaða.

Leitt þegar "stóri-bróðir" leggur fjötra á þann minni, þannig að það leiði til þess að verkefni lognist út af.   Hver er skoðun Brussels-valdsins til mismunar af þessum toga??
mbl.is Fljúga ekki á Bakka í vetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábærar fréttir í íhaldskreppunni.

Þeim fer sem betur fer fækkandi þursunum sem sjá ekki nauðsyn þess að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni. 

Nú er bara að ríkið geri makaskiptasamning vegna bankalóða og flugvallarsvæðisins, svo þetta mál sé þar með út af borðinu í eitt skipti fyrir öll.
mbl.is 64% Reykvíkinga vilja flug í Vatnsmýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lóðaútboðsstefna Ingibjargar Sólrúnar.....

....og R-Listans í hnotskurn.  Gat þetta farið öðruvísi, að greiða 20 milljónir fyrir lóð og þurfa síðan að byggna hús.  Bankakerfið kom svo í kjölfarið og reyndi að knésetja Íbúðalánasjóð með uppsprengdum lofoðum um 100% lán til íbúðakaupa.

Hver var svo að tala um að Kárahnjúkavirkjun væri þensluhvetjandi??? 

Nú auðvita Vinstri Grænir, - bestu vinir bankanna!!

mbl.is Fá ekki að skila lóðum strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fríríkið Arnarhóll.

Ýmis örríki eru rekin sem sjálfstæðar einingar víða um heim.  Sum þeirra eru ekki beinlínis ríki, en þar hefur hópur fólks sett sig niður og þar ríkir ákveðinn sjálfstæðisbarátta í skjön við ríkjandi skipulag viðkomandi lands.  Nærtækt að nefna Christianiu í Kaupmannahöfn.

Annað frægt ríki er Vatíkanið.  Wikipedia, frjálsa alfræðiritið fjallar svona um það ríki: 

”Vatíkanið er ríki páfans, Páfagarður, og er sjálfstætt ríki innan Rómar og miðstöð kaþólsku kirkjunnar. Vatíkanið var stofnað 1929, en áður hafði verið til svo kallað Kirkjuríki sem laut forræði rómversk- kaþólsku kirkjunnar, einnig með höfuðstöðvar í Róm og aðsetur Páfa. Mikil leynd hvílir yfir eignum, tekjustofnum og útgjöldum Vatíkansins, en það hefur eigin utanríkisþjónustu, réttarkerfi, gjaldmiðil, póst- og símaþjónustu, járnbrautarstöð, dagblað og útvarpsstöð. Vatíkanið afmarkast af múrum á þrjá vegu….” 

Passar þessi lýsing ekki býsna vel við Arnarhól og Stjórnarráðið og þau trúarbrögð sem þar eru í gangi þessa dagana??

Er ekki kominn tími til að slíta stjórnmálasambandi við torfuna vegna ítrekaðra inngripa í innanríkismál Íslands??

King Pólo í ræðustól....

....prins Pólo fylgisgt með.  Cool
mbl.is Geir staðfestir pólska aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ein langlokan......

....um ekkert??   Hvað hefur komið fram til þessa á slíkum fundum?  Væri ekki rétt af alþingismönnum að mæta og spyrja tíðinda af stjórnarheimilinu?
mbl.is Ráðherrar boða til blaðamannafundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fangelsi á Reyðarfjörð!!

Þorpið stendur tilbúið, bara þarf að setja rimla fyrir gluggana og tvöfalda rafmagnsgirðingu umhverfis Bectel-vinnubúðirnar, sem standa auðar.  Þar er pláss fyrir um 750 fanga í einsmanns klefum.  Rafmagn er  frá Kárahnjúkavirkjun í tveim öflugum línum niður á álverslóðina rétt hjá, - bara að stinga í samband. 

Öll afþreying á staðnum og nægjanlegt grjót í fjörunni til að virkja sköpunargleðina í listrænum föngum.   Álfasteinn á Borgarfirði hefði yfirumsjón með verkefninu.   

Kjörin nýsköpun á landsbyggðinni og auðvelt að framfylgja samþykktum ríkisstjórnarinnar um að færa störf út á land.

mbl.is Fimm ár fyrir manndrápstilraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband