5.5.2019 | 20:41
Má treysta Pírötum að fara....
...ekki í manngreinarálit? Bíð spenntur eftir nýju Pírata-atriði í þingsal, því ekki skal því trúað að óreyndu, að jafnræði sé ekki í hávegum haft þar á bæ.
https://www.visir.is/i/DE329309ED6890D4F1505F838F6DC9D142A73D6B9D751388C2D13FA1BA74ADF6_713x0.jpg
![]() |
Logi vill gefa Ágústi annað tækifæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2019 | 18:16
Lággjaldaflugfélag......eða???
Lággjaldaflugfélag er með stutta flugleggi, innan við þrjá tíma, virðist ganga upp. Að fara að gjóa augum til Ameríku er of stór biti í háls, sem t.d. stóð í WOW-air og varð m.a. þess banabiti.
Hitt sýnist mér gáfulegt, byrja smátt inn á feita leggi, vera með allar vélarnar eins og halda flugvélunum í vinnu.
Spurningin er um langa leggi á sólarströnd, - gæti gengið með pakkaðar vélar.
![]() |
Leiðaráætlun nýs flugfélags tilbúin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.4.2019 | 21:55
RÚV best einkavætt. Öryggisþátturinn ofmetinn.
Þegar eingöngu ein útvarpsstöð var starfrækt og tæknin takmörkuð við að fá lesna tilkynningu vegna válegra tíðinda, var hægt að skýla sér á bak við öryggisþáttinn. Nú eru margar stöðvar og tæknilega hægt, með samkomulagi við stöðvarnar, að senda sameiginlega tilkynningu í gegnum allar stöðvarnar beint frá Almannavörnum. Það væri langt um áhrifaríkara, en að senda eingöngu á einni ríkisrás, sem ekki hefur almenna hlustun.
![]() |
Ekki brýn þörf lengur fyrir RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.4.2019 | 11:50
ESB aðlögunin....
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2019 | 14:21
Hvernig væri fyrir þingmanninn Þorstein að girða sig í brók....
...og sjá til þess að raforkumál þjóðarinnar verði með þeim hætti að sómi sé að, áður er farið er að leggja þetta fjöregg þjóðarinnar sem skiptmynt í spilakassa ESB.
Hvað hastar?
Hver er ávinningur Íslendinga?
Forgangurinn er:
-Sama orkuverð, hvort sem er í borg, bæ eða lögbýlum
-Rafvæða fyrst hafninar
-Sjá til þess að ekki þurfi að framleiða raforku með olíu á Íslandi nema í neyð
![]() |
Algjörlega óþolandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
8.4.2019 | 19:00
Fyrsti, annar og þriðji orkupakkinn.
Hvað hafa fyrstu tveir orkupakkar skilað sér í hagkvæmni til raforkukaupa á Íslandi?
Hvað mun þriðji orkupakkinn framkalla mikinn ávinning fyrir Íslenska orkukaupendur?
Hvers vegna er verið að taka þetta rugl fyrir og eyða tíma Alþingis?
------------------
Hvernig væri að koma rafmagni í hafnir og minnka kolefnaspor Íslands vegna semmtiferðaskipa?
Hvernig væri að styrkja raforkukerfið á landsbyggðinni, svo ekki þurfi að framleiða rafmagn með innfluttri olíu?
Væri ekki rétt að fjalla um þetta á ALþingi í stað þess að fjalla um tilgangslausa tilskipun ESB?
--------------------
Hvernig væri að laga þann mismun sem er í dreifingu raforku til íbúa dreifbýlis?
Er mismunun ekki bönnuð hjá ESB?
Furðulegt jafnræði það, að dreifbýli þurfi að greiða hærra raforkugjald, vegna skilgreiningu RARIK á því hvað er að vera í dreyfbýli.
Á þetta ekki að vera öfugt?
Á rafmagnið ekki að ódýrara í dreifbýli?
Þaðan kemur rafmagnið!!
Úr dreifbýlinu!!!
![]() |
Tókust á um fjarveru Sigmundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.4.2019 | 18:42
Næsta verkefni er þyrlusveit á Egilsstaðaflugvelli
Það hefur marg sýnt sig, að það er óeðlilegi fyrir bjargir Íslands að þyrlurnar skuli allar vera á suð-vesturhorninu. Akureyri er miðstöð sjúkraflugs á Íslandi, Egilsstaðir eiga að vera með starfsstöð fyrir eina björgunarþyrlu fyrir Austurlandi og miðin.
![]() |
Gæslan prófar dróna hér við land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2019 | 20:13
Hver er huldumaðurinn/konan?
Hvers vegna má ekki gefa upp hver/hverjir sendi athugasemd um þetta mál?
![]() |
Sigmundur braut ekki siðareglur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.2.2019 | 00:00
Borga rétt verð fyrir þá þjónustu sem nýtt er, - hvað annað er í boði?
Auðvita á að setja lög um að bensíngjald renni óskipt til vegamála, þ.e. að útrýma einföldum brúm og malbika á alla þéttbýliskjarna einn plús einn.
Greiða á í öll jarðgöng og nýta þá fjármuni til jarðgangagerðar. Allir vita að þaðan kemur ekki nægjanlegt fjármagn til þess, svo rétt er að leggja hófleg veggjöld á landsmenn. Úr þeim sjóði verður einnig notað fé til að gera einn plús tveir vegi og tveir plús tveir.
Svo verði settur á skemmtanaskattur, til að halda uppi menningunni og svo verði rukkað inn í Hörpu, Þjóðleikhúsið, Sinfóníuna og alla hina staðina það sem það kostar, til að þeir standi undir sér.
Síðast en ekki síst, árangurstengja lán LÍN þannig að þeir sem fá fyrstu einkunn bera lægst vextina sem fara hækkand eftir lakari frammistöðu nemandans. Það stýrir ungu fólki til að velja sér nám í takt við getu.
![]() |
Ákvörðun um veggjöld liggur ekki fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2019 | 11:39
Alþjóðaflugvöllur kallar á hátæknisjúkrahús
Svo merkilegt sem það kann að hljóma þá virðist það vera í huga margra að þar sem sjúkrahús er staðsett þar skuli einnig vera fullbúinn flugvöllur. Víðast á Íslandi er þetta þannig.
Einn staður sker sig þó allhressilega úr, með einn best útbúna flugvöll á Íslandi en einungis slitrur af heilsugæslustöð. Flugvöllurinn er ekki grafinn milli hárra fjalla, hann er með þægilegt aðflug inn á báða enda og ekki er sérstök þörf á að koma ILS-aðflugi inn á þann enda, þá flogið er úr norðri. Flugvöllurinn er malbikaður og vegna aðstæðna í landslaginu er hann sá flugvöllur sem sjaldnast er ófær veðurfarslega séð, ef frá er talinn Keflavíkurflugvöllur. Keflavíkurflugvöllur hefur nauman vinning, eingöngu vegna þess að þar eru tvær flugbrautir. Ef Keflavíkurflugvöllur væri einungis með eina flugbraut stæði hann að baki þeim flugvelli sem hér er til umræðu.
Heimabær umrædds flugvallar er þannig í sveit settur að þar eru allar gerðir af náttúruvá í lágmarki, nema hugsanlega skógareldar. Hverfandi áhætta er af ágangi sjávar og hækkuð sjávarstaða mun seint hafa áhrif þar. Skriður, jarðskjálftar, eldgos, aur- og snjóflóð eru nær óþekkt á svæðinu. Vatnsflóð hafa ekki teljandi hættu í för með sér, þótt áður fyrr hafi þau haft lítilsháttar truflandi áhrif á dagleg störf íbúa svæðisins en fráleitt lífshættu í för með sér. Þakplötur hafa þar ekki fokið síðan rifflaður þaksaumur var fundinn upp. Staðurinn er þar af leiðandi ekki einungis kjörinn til að taka víð íbúum annara svæða þegar framangreindar hamfarir, einar eða fleiri, hella sér yfir heldur ætti það að vera markmið stjórnvalda að búa svo um hnútana að íbúar þessa lands ættu sér athvarf þar þegar náttúruvá knýr upp á hjá þeim. En merkilegt nokk þar er ekkert sjúkrahús.
Stefna stjórnvalda, eins og allir vita, er að koma allri stjórnsýslunni, menntastofnunum, menningarstofnunum, heilbrigðiskerfinu, almannavörnum o.s.frv. inn á eitt eldvirkasta landsvæði á Íslandi. Hver er rýmingaráætlun Reykjavíkur og nágrennis ef til hamfara kemur? Er það um Hvalfjarðargöngin einföld eða tvöföld? Er það um flugvöllinn í Hvassahrauni? Hvert á fólkið að fara?
Er ekki rétt að staldra ögn við í þeirri vinnu að byggja nánast eingöngu upp í Reykjavík? Fram að þessu hefur excel-sértrúarsöfnuðurinn haft það eina markmið að færa allt til Reykjavíkur án þess að fram hafi farið áhættumat á því fyrir íbúa þess svæðis, fyrirtæki eða stofnanir. Það má varla skipta um þvottaefni á almenningssalerni án þess að gera um það áhættumat. Hvar er aðgengilegt áhættumat fyrir Reykjavík og nágrenni? Hvernig hefur það verið kynnt íbúum?
Hagkvæmni stærðarinnar er gjarnan flaggað til að rökstyðja samþjöppun valds og stofnana, en aldrei er fjallað um neitt í víðara samhengi, eins og aðgengi annarra íbúa landsins að þjónustu á vegum ríkisins. Þar eiga íbúar landsbyggðarinnar engan kassa í excel-skjölum, enda er ævinlega lagt upp með fyrirframgefnar niðurstöður til að fá heppilega lausn. Ferðakostnaður eru fjármunir sem renna beint úr vasa skattgreiðenda utan höfuðborgarsvæðisins og ættu, jafnræðisreglum samkvæmt, að vera a.m.k. frádráttarbærir til skatts, nema allar slíkar ferðir væru greiddar af almannafé vegna ferða í stofnanir sem ekki hafa starfsstöð innan eitt hundrað kílómetra radíuss frá heimili íbúans.
Aftur að upphafi þessarar greinar. Bæjarfélagið sem hér er um rætt heitir Egilsstaðir. Flugvöllurinn er góður og væri enn betri ef hann væri lengdur strax, eins og áformað er, í tvö þúsund og sjö hundruð metra, og breikkaður og skráður sem sextíu metra breið braut. Leitun er að betri aðstæðum fyrir varaflugvöll á Íslandi, sem jafnframt er í fullum rekstri. Með markvissum hætti yrði lággjaldaflugi frá Evrópu vísað þangað til að minnka kolefnisspor ferðamanna á Íslandi. Egilsstaðir yrðu auk þess skilgreindir sem varahöfuðborg Íslands og fengju þar af leiðandi sérstaka meðhöndlun sem slík, t.d. með fullkomnu sjúkrahúsi og útstöðvum fyrir helstu stofnanir ríkisins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)