16.2.2009 | 16:41
Sendum þingheim allan til Jan Mayen.....
....þar geta þeir karpað sér til hita. Þannig væri hægt að slá tvær flugur í einu höggi. Vinna það landsvæði til baka frá norðmönnum og þjóðin þarf ekki að horfa upp á þessi vinnubrögð lengur.
Dapurleg forgangsröðin hjá þingmönnum. Er hægt að leggjast lægra?
Dapurleg forgangsröðin hjá þingmönnum. Er hægt að leggjast lægra?
Þingmenn karpa um fjaðrir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Væri ekki réttara að senda hann til Tortóla.
Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 16:51
Nei Gísli, ég rökstyð það.
Við eigum einnig ríkra hagsmuna að gæta á Drekasvæðinu.
Benedikt V. Warén, 16.2.2009 kl. 16:55
Já hann er ótrúlegur barnaskapurinn sem viðgengst á vinnustaðnum Alþingi. Ég hélt að þingmenn og ráðherrar þessa lands hefðu eitthvað annað að gera en að standa í þessu gamaldags karpi sínu. Það þarf greinilega að upphefja ný vinnubrögð á þessum vinnustað. Og greinilega þarf að skipta út fólki í öllum flokkum ekki bara þeim sem telja sig bera ábyrgð á því hvernig komið er fyrir Íslenskri þjóð. Gs.
Guðlaugur (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 16:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.