20.5.2008 | 08:51
Loka til að geta auglýst??
Það stingur nokkuð stúf, að á sama tíma og stjórnendur Símans ákveða að loka starfsstöð á Egilsstöðum, er í gangi kostnaðarsöm áróðursherferð í blöðum og sjónvarpi. Fyrir þessar auglýsingar, sem ekki eru gefnar, mætti eflaust reka útibúið á Egilsstöðum í nokkur misseri.
Málið er hinsvegar ekki flókið. Þetta er svokallað Reykjavíkurheilkenni og virkar þannig hjá stjórnendum fyrirtækja, íbúum borgarinnar og alþingismönnum yfirleitt, að það sem er lengst frá Reykjavík er ekki á vetur setjandi.
Svo einfalt er það.
Svo væla þessir sömu einstaklingar reglulega um að færa störf út á land. Maður gæti ælt.

Síminn lokar búð á Egilsstöðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
og hvar er símaaurinn
Einar Bragi Bragason., 20.5.2008 kl. 09:16
Fór hann ekki í Grímseyjarferjuna......
Benedikt V. Warén, 20.5.2008 kl. 09:22
Æli þér til samlætis. Fróðlegt verður að sjá niðurstöður úr þeirri "athugun" sem nú stendur yfir varðandi 10 störf til viðbótar á Egilsstaðaflugvelli. Jafnvel 11, ef tækniþjónusta við stuttbylgjusenda er talin með. Og það án þess að þessi störf séu "færð" einhversstaðar frá , heldur eru þau "ný".
Ólafur Vignir Sigurðsson (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 15:04
Ólafur. - Það væri hreint frábært ef það gengi eftir.
Benedikt V. Warén, 20.5.2008 kl. 20:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.