29.2.2008 | 09:10
Enn einn gleðidagurinn.
Það er full ástæða að gleðjast yfir þessum áfanga og óska öllum hluteigandi til hamingju. Mikil eftirvænting ríkti daginn á Reyðarfirð, þegar fyrsta skóflustungan var tekin.
Frá þeim degi hafa Austfirðingar mátt þola óvægna umræðu fólks, sem hafa haft allt á hornum sér hvað varðar þetta fyrirtæki og ekki síður verk Landsvirkjunar við Kárahnjúka. Það verkefni er verkfræðilegt afrek og á eftir að verða mikið aðdráttarafl fyrir venjulega ferðamenn jafnt og þá sem hafa sérstakan áhuga á tæknilegum framförum mannsins og afrekum á ýmsum sviðum.
Enn og aftur til hamingju með áfangann !
Fullvinnsla áls hafin hjá Alcoa Fjarðaáli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já, gott að heyra. Ekki er nú annars mikið fjallað um þessa virðisaukandi starfsemi hjá ALCOA enda gagnast slík umræða ekki andstæðingum álvera og atvinnusköpunar úti á landi.
Ég hef líka heyrt (sem oft "gleymist" að nefna) að framleiðslugeta Kárahnjúkavirkjunar sé 30% meiri en reiknað var með. Þetta þýðir í raun umfram orku upp á ca. 210 MW til viðbótar þeim 700 MW sem reiknað var með að Kárahnjúkavirkjun myndi framleiða. Þetta orku mætti nota til frekari atvinnuuppbyggingar t.d. netþjónabú og gagnaver úti á landi.
Örn Jónasson (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 11:55
Nefndi það í einu bloggi mínu hér fyrr um orkuna, að Kárahnjúkavirkjunin hefðu komið sér vel þegar bilun varð í spennum Sultartangavirkjunar. Þetta þótti ekki frétt, enda hugnast það ekki nokkrum einstaklingum sem kenna sig ranglega við nátturuvernd og virðast, því miður, hafa ansi sterk tök á fréttastofu RÚV.
Fljótsdalshérað kemur sterklega til greina sem svæði fyrir netþjónabú og gagnaver. Næstu dagar munu skera úr um hvort það verður að veruleika.
Benedikt V. Warén, 29.2.2008 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.