Hvernig taka "Staksteinar" Mbl. á þessu?

Ég hef sjaldan verið jafn spenntur að bíða eftir að lesa álit Staksteina í Morgunblaðinu eins og nú.  Fram að þessu hefur sá ágæti vetvangur verið fljótur til að gagnrýna ýmsar gjörðir manna í samfélaginu, sérstaklega þeirra sem ekki eru í Sjálfstæðisflokknum.

En eins og skrifað er í góðri bók, þó nú um stundir sé deilt um þýðingu hennar, þá reikna ég með að  Staksteinar sjái eins og venjulega ... flís í auga náugans en ekki bjálkann í sínu eigin (flokksmanna-) auga.......

Rétt til að rifja upp frétt í DV um umrætt mál þann 20 des 2007:
"Ég er ekki sammála áliti nefndarinnar," segir Árni Matthiesen sem í dag skipaði Þorstein Davíðsson dómari við Héraðsdóm Austurlands og Héraðsdóm Norðurlands eystri , þvert á álit nefndar sem falið var að kanna hæfi þeirra fimm umsækjenda sem voru um stöðuna. Af þessum fimm taldi nefndin þrjá umsækjendur hæfari en Þorstein.


mbl.is Þorsteinn Davíðsson skipaður héraðsdómari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband