Marteinn Mosdal er fyrirmynd margra á ýmsum sviðum.

Það á að vera ein ríkisskoðun á öllum miðlum og ekkert múður. Það er í anda Marteins Mosdals. Magnað hve Mosdalsættin er stór.

Fréttamenn eru góðir í því að finna hinn stjörnubjarta sannleika og þegar hann er kominn í hús apa allir hann upp.  Þegar nægjanlega margir eru búnir að samþykkja, þá er komin hin löggilta ríkisskoðun, - klippt og skorin og þá verður ekki aftur snúið.

Ekki skiptir lengur máli um sannleikann né staðreyndir, fjöldinn hefur talað.  Jörðin væri ennþá talin flöt, ef sama reglan hefði verið í gildi og meirihlutinn hefði alltaf rétt fyrir sér, sem er auðvita argasta bull og vitleysa.

Efasemdir hafa vaknað um ágæti bólusetninganna, sem ekki mátti fjalla um í miðju fárinu, en eru nú að fljóta upp á yfirborðið.  Ekki er verið að halla á þá sem þurftu að tak ákvarðanir undir miklum þrýstingi.  Að kæfa umræðu er allt annað mál og múgsefjun um eina ríkisskoðun er beinlínis skaðleg.

Verst af öllu er þegar umburðalindið og virðing fyrir skoðunum annarra er komin á þetta lága plan.


mbl.is Hótað fangelsisvist fyrir að skrifa upp á Ivermectin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ekki er nóg með að efasemdir um ágæti hinna svokölluðu "bóluefna" sé farnar að fljóta upp, heldur er alltaf að koma betur og betur í ljós að þær reyndust á rökum reistar.

Sæm dæmi sýndi nýútkomin íslensk rannsókn að því fleiri sprautur, því meiri líkur á endursmiti (en ekki minni). Skömmu seinna var byrjað að boða fjórðu sprautun. Þvílíkt rugl.

Jafnframt hefur verið viðurkennt opinberlega að engin vísindi lágu að baki ýmsum aðgerðum á borð við grímuskyldu, tveggja metra fjarlægðarreglu o.fl.

Efasemdarfólkið á inni stóra og feita afsökunarbeiðni frá öllum sem úthrópuðu þau sem samsæringa, álhatta og kölluðu þau fleiri illum nöfnum.

Guðmundur Ásgeirsson, 25.8.2022 kl. 19:37

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Þakka innlitið Guðmundur.

Furðulegust er hjarðhegðunin hjá ríkjandi yfirvöldum heilbrigðismála og meðvirknin og gagnrýnislaus umfjöllun fréttamiðlana.

Benedikt V. Warén, 26.8.2022 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband