7.11.2021 | 09:33
Þetta er náttúrulega alveg skelfilegt- - -
...þegar fólk þarf að fara út á land til að fá lögboðna þjónustu. Það er líka stórfrétt.
Fyrir okkur á landsbyggðinni er þetta ekki-frétt því nær alla þjónusta sérfræðinga þurfum við að sækja til Reykjavíkur.
Svona eru vandamálin mis alvarleg eftir af hvaða hóli er horft og fréttamatið líka.
Kallar eftir breytingum á meingölluðu kerfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 09:34 | Facebook
Athugasemdir
Þarna er þá jafnræðis gætt að mismuna öllum á jafnan hátt?
Sem borgarpési þá hefur mér ætíð fundist landsbyggðarpésar verið beittir ranglæti að þessu leyti.
Loksins erum við á sama plani!
Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 7.11.2021 kl. 23:39
Sæll Heiðar Þór.
Þakka þitt innlegg. Spurningin er hvort við erum á réttri leið, að stefna á það að allir hafi það jafn skítt.
Er ekki betra að hafa á þann veginn að stefna að því að allir geti haft það jafn gott, - eða a.m.k. því sem næst?
Benedikt V. Warén, 8.11.2021 kl. 13:45
Sæll Benedikt.
Jú hárrétt hjá þér, það var eiginlega boðskapur minn með þessu öfugsnúna innleggi.
Ef bara við hefðum sett allt það fjármagn sem byggðasjóður sóaði í lestarkerfi um landsbyggðina.
Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 8.11.2021 kl. 14:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.