Svikin loforð í Norðausturkjördæmi.

Það er að verða nokkuð ljóst, að það á að stinga öllum framkvæmdaáætlunum við Egilsstaðaflugvöll undir stól fyrir þessar kosningar.  Sveitastjórn Múlaþings þegir þunnu hljóði eins og þeim komi málið hreint ekkert við.  Aðeins mjóróma rödd Austurbrúar, um Loftbrú kemur tröllinu syðra til að rumska. „Hver er að trampa á brúnni minni“, heyrist úr samgönguráðuneytinu. 

Reyndar er þetta nær dæmisögunni um Litlu gulu hænuna þar sem margir gera tilkall til að hafa „fattað upp á“ Loftbrúnni.   Vandamálið er hinsvegar; - hver er Litla gula hænan í þessu ævintýri?

Loforð Framsóknarflokksins um stórkostlegar framkvæmdir 2020 breyttust á einni nóttu 2021 í björgunaraðgerðir til þess að flugvellinum yrði ekki lokað um óákveðinn tíma.  Hugmyndir samgönguráðherra um að færa verkefni Egilsstaðaflugvallar undir ISAVIA Keflavík hurfu eins og dögg fyrir sólu, þegar stjórn ISAVIA hunsaði vilja Sigurðar Inga Jóhannssonar, sem lyppaðist niður undan ströngu augnaráði undirmanna sinna.  Einhver hefði haft döngun í sér að skipa nýja stjórn við þessar aðstæður.  Fyrsta sæti Framsóknarlistans vermir þingmannsefni úr Eyjafirði.  Hvers má vænta?  Loforð, sem auðvelt verður að svíkja?  Sporin hræða, það er eina sem er alveg víst.

Sjálfstæðismenn, með Njál Trausta Friðbertsson við stjórnvölinn, sjá ekki austar en sem nemur Vaðlaheiðinni, þó búið sé að gera rándýrt gægjugat í hana.  Kjósendur Sjálfstæðisflokksins handan Vaðlaheiðarinnar geta gengið að því vísu, að atkvæði greidd flokknum núna, gera það eitt að efla efstu menn listans að auka lífsgæði fólksins á Eyjafjarðasvæðinu á kostnað hinna.  Egilsstaðaflugvöllur á ekki talsmann meðal þingmannaefna í fyrstu sætum D-listans í Norðausturkjördæmi.

Skammarlegast er þó, að sveitastjórnarmenn (-konur) nefndra flokka í Múlaþingi virðast ekki vera í neinu sambandið við móðurflokka sína á Alþingi, um málefni Egilsstaðaflugvallar,  frekar en að hvorki sé búið að finna upp síma né önnur fjarskiptatæki.

Máski er það annað sem veldur:

Algjört áhugaleysi á verkefninu hjá umræddum fulltrúum í Múlaþingi. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þau föttuðu allavega upp á malbikinu Pelli, nú er bara að bíða og sjá hvort þau finna ekki upp steypuna líka.

En ég held að best sé að gleyma öllum draumórum um að litla gula hænan fljúgi. 

Magnús Sigurðsson, 3.9.2021 kl. 20:15

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Sæll Magnús.

Það skyldi nú ekki vera að sú litla gula hafi fattað upp á fluginu og kunni þar af leiðandi sögur um afrek sín í fluglistinni.  Það væri eftir öðru.

En aftur að framkvæmdum til að halda því til haga, þá upplýsti samgönguráðherra um framkvæmdir við akstursbraut við flugvöllinn á Egilsstöðum, loforð sem ekki var túskildings virði.  

Enginn kom af stjórnarheimilinu til að gleðjast við lok verksins á flugvellinum á Egilsstöðum, enda öll ríkisstjórnin búin að ofreyna sig við að stinga fyrir nýrri flugstöðvarbyggingu á Akureyri. 

Benedikt V. Warén, 3.9.2021 kl. 22:21

3 Smámynd: Benedikt V. Warén

Logi Einarsson Samfylkingargoði er þar að auki með sínar áherslur s.k.v. samantekt hjá Austurfrétt. Fyrir hvaða kjördæmi skyldi hann vera að vinna fyrir?

,,Þá hefur Logi tjáð sig um málefni Akureyrar og vill auka vægi bæjarins á landsvísu. „Aðgerðir sem hægt er að ráðast í nú þegar í þessu augnamiði eru að Sjúkrahúsið á Akureyri verði háskólasjúkrahús, að Háskólinn á Akureyri bjóði upp á bæði list- og tækninám, miðstöð um málefni Norðurslóða á Akureyri verði efld til muna, framlög ríkisins í menningarsamning vegna Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Listasafnsins á Akureyri verði stóraukin og kraftur verði settur í að koma á reglulegu millilandaflugi til Akureyrar.''

Benedikt V. Warén, 3.9.2021 kl. 22:33

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Upplýsti samgönguráðherra ekki líka að framkvæmdir væru hafnar við Fjarðarheiðargöng þó engin væri þar skurðgrafan?

Kannski há hann eftir að ljúka göngunum einnig með sama móti, og þá verður sennilega ekki langt í að megi sjá litlu gulu hænuna fljúga í spálíkani á fjarfundabúnaði, -stay tuned, eða þannig.

Magnús Sigurðsson, 4.9.2021 kl. 07:38

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Annars verð ég að segja að það var uppbyggilegra að engin skildi mæta af stjórnarheimilinu til að gleðjast vegna verkloka malbikunarinnar.

Það var ekki svo gæfulegt þegar þessi náhirð mætti hér náföl og píreyg um há sumar til að lýsa yfir drepsótt.

Magnús Sigurðsson, 4.9.2021 kl. 07:47

6 Smámynd: Benedikt V. Warén

Ef Framsóknarmenn á Austurlandi eru ánægðir með framgöngu flokksins í kjördæminu er aðeins eitt um kjósendur hans:

Þangað leitar klárinn sem hann er kvaldastur.

Benedikt V. Warén, 4.9.2021 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband