29.9.2017 | 16:07
Er ekki rétt að Sigurður fari að íhuga að taka pokann sinn?
Þetta er náttúrulega bara hamfarir af mannavöldum i Framsóknarflokknum.
Með bolabrögðum á síðasta flokksþingi í Háskólabíói, kom berlega í ljós að Flokkseigendaklikan kann ekki að meta að grasrótin segi sína skoðun né hafi málfrelsi og tillögurétt. Fráleitt er að mati þessara Svarstakka að almennur flokksmaður megi nýta lýðræislegan rétt sinn og kjósa að eigin sannfæringu.
Sagan frá kosningu í Rússlandi á væntanlega vel við hér.
Þegar kjósandi kom á kjörstað fékk hann í hendurnar lokað umslag. Hann tók við umslaginu og gerði sig líklegan til að opna það.
"Hvað ertu að gera maður" sagði fulltrúinn bystur.
"Ég ætlaði bara að skoða hvað ég væri að kjósa" sagði kjósandinn niðurlúpur.
"Ertu vitlaus maður" gargaði fulltrúinn foxillur, "-veistu ekki að þetta er leynileg kosning!"
Segir eftirsjá að Gunnari Braga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Benedikt.
Nú þyrfti að fullkomna þetta með því
að Lílja Dögg Alfreðsdóttir gengi til liðs við þá félaga
ásamt þeirri breiðfylkingu sem siglir seglum þöndum
inní íslensk stjórnmál og ekki vanþörf á.
Húsari. (IP-tala skráð) 29.9.2017 kl. 23:01
Góður þessi Benedikt, kanski verða það þrír flokkar sem koma ekki manni á þing af þeim sem voru á þingi síðasta þings.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 30.9.2017 kl. 19:37
Jóhann! Mér hefur alltaf fundist Benedikt
eldklár og skemmtilegur penni!
Húsari. (IP-tala skráð) 30.9.2017 kl. 21:48
Sæll Húsari. Ekki veit ég um Lilju, ég efast um að hún hugsi sér til hreyfings, en vissulega væri akkur fyrir Sigmund að fá að nýta krafta hennar aftur.
Þakka svo hlý orð í minn garð.
Benedikt V. Warén, 1.10.2017 kl. 12:47
Sæll Jóhann. Þakka innlitið.
Talsvert er í kosningar enn og viðsnúningar geta orðið nokkrir áður en kjörstaðir opna í lok mánaðarins.
Verst af öllu er að þetta ástand er ekki frambjóðendu einum að kenna, svo oft hefur þeim verið skipt útán þess að ástandið breytist hætis hót.
Spurningi hlítur því að vera, er ekki komið að því að skipta út kjósendum?
Benedikt V. Warén, 1.10.2017 kl. 12:56
Ég væri fylgjandi því að kjósandi borgi kr.10.000 til að fá að kjósa. Það mundi verða til þess að kjósandi mundi kynna sér helstu málefni flokkana og hvað þeir hafa hugsað sér að gera í þeim.
Það yrði lítið um að skilað væri auðum kjörseðlum og kjósendur mundu hugsa sig um tvisvar, áður en þeir beita atkvæði sínu á grínframboð ef þeir greiða kr.10.000 fyrir að kjósa.
Þar fyrir utan þá væru það þeir sem kjósa sem stæðu undir kostnaði á kosningum en ekki þeir sem kjósa ekki.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 1.10.2017 kl. 18:11
Húsari. (IP-tala skráð) 3.10.2017 kl. 10:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.