13.10.2011 | 13:34
Sveitarfélögin skaffa.....
....ríkið hirðir. Fjármálaráðherrann ætti frekar að nefnast......Fjárhirðir.
Þetta leiðir enn og aftur hugann að skiptingu tekna milli ríkis og sveitarfélaga. Þar hefur lengi hallað verulega á, - sveitarfélögum í óhag.
Sitjandi ríkistjórnir hafa ávallt búið að því að eiga ráð til að skattleggja borgara landsins, ef illa árar, - það heita landslög. Þegar sveitarfélögin lenda í fjárhagserfiðleikum, þá tala þingmenn og ráðherrar um óráðssíu.
Þetta þarf að laga. Sveitarfélögin eiga að fá að njóta stærri hluta þeirra tekna og verðmæta, sem verða til í heimabyggð.
Alþingi á að sjá um löggjafavaldið og framkvæmdavaldið á í ríkara mæli að vera hjá fólkinu, þ.e. hjá sveitarfélögunum.
Til þess að gæta jafnréttis milli ríkis og sveitarfélaga, verður að bylta skattkerfinu og gjörbreyta.Öll skattinnheimta verði í höndum bæjar- og sveitarfélaga, sem síðan verði gert að greiða í einn sjóð skv. höfðatölu, öll sömu krónutölu miðað við hvern einstakling óháð aldri og stöðu.
Fleiri verkefni til sveitarfélaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.