13.10.2011 | 12:09
Hamfararýni
Nú eigum við heimsins færustu sérfræðina, - sama hvert litið er. Þetta er a.m.k. skoðun margra. Fyrir mér, almúgamanninum, vefst því eftirfarandi.
Ég veit að við búum á eldfjallaeyju.
Hvers vegna kemur það svo mörgum á óvart að það skuli gjósa af og til?
Ég veit að í nágrenni höfuðborgarinnar eru virkar eldstöðvar.
Hvers vegna byggja menn allt öryggi landsins upp á þessu eina svæði?
Hvers vegna vilja menn Reykjavíkurflugvöll feigan?
Ég veit að það getur gosið á Reykjanesi þannig að Keflavíkurflugvöllur lokast.
Hvernig ætla menn þá að koma erlendum björgunarflokkum til Reykjavíkur?
Ég veit að fólk slasast í hamförum.
Hvernig á að vinna með slasaða, ef ekki er hægt að koma þeim burt, sjúkrahús landsins eru óvirk vegna þess að engin eru starfrækt á landsbyggðinni?
Ég veit að það er verið að æfa aðgerðir vegna náttúruhamfara.
Hvernig hljóma áætlanir um að flytja alla frá Reykjavík og hvað svo............?
Stöðum á LSH fækkar um 85 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.