6.10.2011 | 11:11
Nú er komið gott í fokkinu...
.....eins og margir orða það nú til dags.
Betra væri samt að segja: "Nú er nóg komið í ruglinu"
Þessi byggingaráform eru fráleitt í samræmi við þann barlóm sem stöðugt skekur veggi Alþingishússins innan frá.
Þessar hugmyndir eru ekki í takt við skref ráðherra heilbrigðismála í niðurskurði og uppsögnum, sem mest bitna á konum á landsbyggðinni.
Fráleitt er að þetta sé gerlegt vegna stöðu ríkissjóðs og síðast en ekki síst, ekki í nokkrum takti við heilbrigða skynsemi á meðan grunnþjónustan er í molum viða á landsbyggðinni.
Það þarf örugglega meira en harðsoðið egg í hausinn á alþingismönnum, til þess að þeir sjái þetta í samhengi.
Ríkissjóður er einn tómur kassi. Hann er jafn galtómur þegar kemur að því að byggja glæsihýsi í Reykjavík á kostnað þjónustunnar á landsbyggðinni.
Telja byggingu sóun á skattfé | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.