15.5.2011 | 16:43
Rekkjunautar fræga fólksins
Var á skemmtun í Valaskjálf þar sem flutt voru lög Björgvins Halldórssonar að hætti heimamanna. Aldeilis fín afþreying og flytjendum til sóma.
Á skemtuninni var einnig kynnir, sem skaut inn athugasemdum um allt og ekkert. Féll vel í kramið, heyrðist mér.
Þar kom að hann fór að fjalla rekkjunauta fræga fólksins og rifjaði upp að nýlega hefðu um það fréttir ratað í blöðin að Sveinn Andri hafi verið að endurnýja hjá sér. "Kominn í lambakjötið". Uppskar léttan kæfðan hlátur.
"Svo eru aðrir að gera garðinn frægan út í heimi, eins og lesa má í blöðum". Hnykkti á 50 ára aldursmun á Önnu Mjöll og knapa hennar. "Það má segja að hún hafi skellt sér í skerpukjötið".
Svo hélt kynnirinn áfram að velta upp sérstökum kvöldum þeirra hjóna og líðan frúarinnar í rökkrinu þegar: "aldurinn færðist yfir hana":
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.