22.12.2010 | 18:04
Kæru þingmenn, er ekki allt í lagi hjá ykkur?
Eru það ekki peningar úr sömu buddunni, - fé til framkvæmda og reksturs?
Það er verið að skera niður heilbrigðisstofnanir um allt land. Þið teljið okkur trú um að við höfum ekki efni á velferðarþjóðfélaginu, sem við höfum þó í mörg ár verið að byggja upp.
Hvernig höfum við þá efni á að standa í milljarðaframkvæmd?
Við erum að mennta lækna og sjúkraliða, en höfum ekki efni á að borga þeim laun. Þessi hópur flytur því úr landi.
Hvers vegna að byggja yfir starfsemi sem er takmörkuð á landinu?
Hvers vegna að mennta svona marga, - sem flytja síðan úr landi?
Hver er virðisaukinn í slíkri menntun?
Er ekki verið að byrja á vitlausum enda?
Hvernig væri að skilgreina þörfina fyrir menntun og finna hvaða menntun hentar best við íslenskar aðstæður.
Magn, gæði og þörf verður hér að haldast í hendur.
Forhönnun í fullum gangi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.