Færsluflokkur: Menntun og skóli
21.5.2021 | 09:27
Háskólaklasi á Austurlandi
Austurland hefur lengi mátt sæta því að vera langt á eftir þegar kemur að samfélagsþjónustu og verklegum framkvæmdum með þátttöku hins opinbera. Að hluta til má kenna heimamönnum um, vegna þess að þeir eru mun orkuríkari í hrepparíg en þegar kemur að sameiginlegum hagsmunum heildarinnar. Undantekningin var verkefnið í kringum Kárahnjúka og Álver Alcoa á Reyðarfirði. Þar sannaðist að þegar allir ýta vagninum í sömu átt, verður framvinda.
Í mörg ár hefur verið þrýst á um háskóla á Austurlandi. Lítið hefur þokast m.a. vegna alkular á slíku verkefni hjá Háskóla Íslands. Ráðamenn skólans eru haldnir Ártúnsbrekkusyndrominu eins og flestir ráðamenn með heimilisfestu í Reykjavíkurhreppi. Fleiri íslenskar menntastofnanir á háskólastigi hafa verið þuklaðir, en þær beiddu allar upp.
Ekki er hallað á nokkurn mann þó nefndur sé Jón Þórðarson, fyrrverandi sveitastjóri á Borgarfirði eystra. Hann hefur vakinn og sofinn unnið að þessu verkefni og dregið vagninn í átt að endapunktinum svo hlutirnir eru nú farnir að skýrast.
Austurfrétt 20.5.2021:
Forsvarsmenn skoska háskólans University of the Highlands and Islands (UHI) segjast líta björtum augum til væntanlegs samstarfs á sviði háskólastarf og rannsókna sem gert var við sveitarfélagið Múlaþing í mars.
Tilgangur okkar að breyta framtíðarmöguleikum svæðisins okkar, efnahags þess, fólki og samfélögum. Í gegnum þetta samstarf reynum við að færa þetta markmið út fyrir landsteinana og hjálpa Múlaþingi til að takast á við sínar áskoranir og væntingar. Þetta er spennandi samstarf sem ég vona að við getum byggt á til framtíðar, segir Todd Walker, rektor skólans í tilkynningu.
Til hamingju Austurland!
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)