Hver er munurinn?

Hér eru tveir einstaklingar handteknir fyrir meint rán á einum.  Þau eru látin dúsa í grjótinu á meðan mál þeirra er rannsakað og eignir þeirra frystar.

Við vitum um einstaklinga, sem með örlítið öðrum hætti blekkti fólk og rændi það í gegnum bankakerfið og viðskiptalífið.  Þessir einstaklingar ganga lausir og geta stofnað og/eða keypt fyrirtæki og fá fyrirgreiðslu í bankastofnunum þrátt fyrir að allir vita um framferði þeirra gagnvart öðrum.

Hver er munurinn?  Er gjörningurinn ekki sá sami?  Er munurinn ef til vill sá einn, að erlendis eru afbrotamenn umsvifalaust teknir úr umferð, þegar upp um þá kemst?

mbl.is Greiddi 18 milljónir á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytum háskólahúsinu við Reykjavíkurflugvöll í flugstöð.

Hvað er verið að meina með öllum þessum háskólum á Íslandi?  Þjóð sem er rétt losar þrjúhundruð þúsund.  Smáþorp á alþjóðavísu.

Sjá brilliant tillögur sem Sturla Snorrason hefur sett fram.

http://midborg.blog.is/blog/midborg/entry/987200/


mbl.is Hætt við sameiningu í bili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að fækka háskólum niður í einn.

Hvað á það að þýða, fyri örþjóð, að vera með alla þessa háskóla út um allt á þessu útskeri.  Um það bil helmingur sem lýkur prófi flyst hvort eð er utan eftir nám, vegna þess að ekki eru næg atvinnutækifæri innanlands.  Hluti þeirra sem eftir sitja fá vinnu þar sem háskóla nám nýtist og einhver hópur nælir sér í þægileg sæti þar sem háskólagráður er ekki krafist.  Síðan er stór hjörð, sem hefur enga burði til að vera í langskólanámi og ætti að vinna eitthvað ærlegt handtak og skapa tekjur í stað þess að eyða þeim.

Hvernig væri það að þriðjaflokks háskólinn okkar, Háskóli Íslands, tæki sér tak og kannaði hvað mundi sparast mikið með því að hætta þessu viðáttumikla háskólabrölti og draga saman hvað það sparaði í  þjóðarbúinu, að hafa einungis einn háskóla og vera eingöngu með um þúsund nemendur í námi á hverju ári. 

Þurfum við fleiri háskólamenntaða menn á ári til að mæta eðlilegum afföllum?
mbl.is Dragi djúpt andann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út yfir gröf og dauða.

Hvað með jólamessur og messur yfirleitt?  Hvar ætla útrásagengi STEFS að stoppa? 

Hvenær mega sjúklingar með eyrnasuð, eiga von á að þurfa að greiða STEF-gjöld fyrir að vera með suð í eyrum daglangt?  Hvað með þá sem búa við umferðagötu og eru þeirrar ánægju aðnjótandi að vera með hljóðið frá umferðinni inn á gafli hjá sér?  Hvað með fuglasönginn?
mbl.is STEF-gjald af allri tónlist við jarðarfarir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin er að svelta landsbyggðarfólk....

....af heimaslóð sinni.  Hefur hún umboð til þess? Hvers eiga þeir að gjalda, sem fulla vinnu hafa.  Ríkisstjórnin er að verðfella landsbyggðina. 

Hvers eiga svo aldraðir að gjalda?  Þeir eru nú skotspónn ríkisstjórnarinnar.  Þetta fólk á nú á hættu að vera flutt hreppaflutningum í nafni sparnaðar og hagræðingar stjórnvalda.  Er hægt að leggjast lægra? 

Ríkistjórnin er greinilega plága og gerði best í því að fara frá. 

Er ekki tími komin til að af-tengja?


mbl.is Vestfirðingar slökkva ljósin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geta þeir bara ekki gert eitthvað annað?

Eða það sem enn betra er; gera eitthvað annað en eitthvað annað. 

Myvetningum er bent á að leita í smiðju VG um ný og fjölbreytt atvinnutækifæri.  Þau liggja þar í massavís, - eða svo er a.m.k. látið í veðri vaka. 

Bara að finna "eitthvað annað".

mbl.is Þróun á vélum til framleiðslu á pappabrettum í Mývatnssveit hefur stöðvast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umkenningarleikur Steingríms.

Í Stapanum í sl. viku var hart sótt að Steingrími.  Eftir fundinn svaraði hann blaðamanni mbl.is um þá gagnrýni sem hann hefði sætt á þeim fundi.  „Ég svaraði henni þannig að það hefði ekkert upp á sig að vera í einhverju karpi og umkenningarleik; við kæmust ekki hænufet með þeim hætti...."

Hver er nú í umkenningarleik?  Steingrímur er komin í gamla farið að kenna öðrum um, ekkert að hjá honum.  Auðvita hafa aðrir talað "hlutina niður úr gólfinu". 

mbl.is Steingrímur gagnrýnir fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Garðaúrgangssvæðinu við Eyvindará lokað

Á heimasíðu Fljótsdalshéraðs má finna eftirfarandi:

"Vegna óásættanlegrar umgengni á garðaúrgangssvæðinu utan Eyvindarár, hefur verið tekin sú ákvörðun að loka því. Fyrst um sinn verða gámar staðsettir við afleggjarann niður að svæðinu þar sem íbúar geta losað sig við garða- og steypuúrgang. Þeir sem vilja losna við umtalsvert magn verða að koma við á gámavellinum í Tjarnarási á Egilsstöðum og fá leiðbeiningar um hvað gera skuli við úrganginn."

Þetta er svo sem allt satt og rétt, umgengnin hefur ekki verið upp á marga fiska og einkennilegt að geta ekki tæmt úr plastumbúðum, eins og þrásinnis hefur verið beðið um.  En eru allir með hreinan skjöld.  Varla.  Hér kjósa þó bæjaryfirvöld að skella skuldinni eingöngu á íbúana, en ekki líta í eigin barm.  Umgengnin af hálfu bæjaryfirvalda hefur einnig verið til háborinnar skammar.  Lítið sem ekkert eftirlit með svæðinu, vegurinn nánast ófær nema á torfærutækjum og haugarnir þannig að erfitt er að komast að til losa.

Stjórnendur bæjarfélagsins eiga að sjá til þess að svæðið sé sómasalega umgengið, fært að því og lagað jafnóðum og eitthvað fer aflaga.  Seint verður hægt að kenna öllum umgengni á slíkum svæðum, fólki sem ekki treystir sér að henda rusli annarsstaðar en á göturnar, þó rusladallur sé í augsýn. 

Eigum við íbúar Egilsstaða von á því að götunum bæjarins verði lokað með sömu rökum og notuð eru til að loka garðúrgangasvæðinu?


Umrenningur, umskiptingur og umkenningur.

Umrenningur

Skýring í orðabók:  KK, flækingur, flakkari, vera eins og landafjandi út um allt.

Betri skýring:  Þingmaður á ferð um landið fyrir kosningar að útlista alla þá hluti sem hann ætlar að gera fyrir kjósendur sína.  Eins og t.d. Steingrímur J Sigfússon að segja öllum að það komi aldrei til greina að ganga í ESB.

Umskiptingur

Skýring í orðabók: KK, álfur (venjulega gamall), látinn í stað mennsks barns sem álfar tóku.

Betri skýring: Þegar þingmenn, eftir kosningar, bera það á borð fyrir kjósendur sína að það sem hann lofaði fyrir kosningar hafið nú bara verið smá "joke", sem hafi bara fallið í hita leiksins.  Óþarfi að taka það of alvarlega, hvað þá að erfa það við viðkomandi þingmann.  Eins og t.d. Steingrímur J Sigfússon að segja öllum að það komi aldrei til greina að ganga í ESB.

Umkenningur

Skýring í orðabók: Engin

Betri skýring: Óbreyttur þingmaður, sem stöðugt er að segja kollegum til syndanna úr ræðupúlti Alþingis með kjarnyrtum frösum og finnur sitjandi ráðherrum allt til foráttu, - alltaf.  Hamrar t.d. látlaust á því að ekki skuli borga Icesave-sukkið, - er sammála þjóðarsálinni.  Dæmi: Steingrímur J Sigfússon

 

 

 


Það minnkar sem af er tekið....

....þannig hefur það a.m.k alltaf verið í minni sveit.  Þegar búið er að setja bróðurpart fyrirtækja á hausinn minnka líkurnar á gjaldþroti og þegar flestir verða fluttir utan, deyr atvinnuleysið út. 

Bráðsnjallt!

Svo vantar bara eitt frá þessari ríkisstjórn, - heiðarleikann.  Það vantar að setja setja um það lög, að enginn skuli búa utan Stór-Reykjavíkursvæðisins.

Heiðarleikinn felst í því að koma hreint fram í aðför sinni að landsbyggðinni, - í stað þess að svelta landsbyggðafólk frá heimkynnum sínum.


mbl.is Gjaldþrotum fækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband