Léttsýrð mjólk frá Akureyri á Austurlandi.

Hagræðingin heldu allstaðar innreið sína, nú er það mjólkin.  Það eru búið að loka fyrir mjókurvinnslu í mjólkurbúinu á Egilsstöðum, þrátt fyrir fögur fyrirheit um annað. 

Fyrst er mjólkinni ekið frá bændum og safnað saman á Egilsstöðum.  Frá Egilsstöðum er henni ekið og pakkað á Akureyri til að hægt sé að senda strax hana viðstöðulaust til baka í verslanir á Austurlandi. 

Vont er þegar það vantar mjólk í kælana í kaupfélaginu, verra er að fólk missi vinnu sína vegna stjórnsýslunnar í öðrum sóknum en allra verst er þó, að mjólkin endist mun verr en áður og verður fyrr bragðvond. 

Skal engan furða, - hún er orðin bílveik blessuð mjókin. 

Lausnin er að gefa beljunum bílveikitöflur fyrir mjaltir. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Pelli ertu þá bara að drekka sjeik alla daga? (veit ekki hvort þetta slangurorð yfir mjólkurhristing er rétt skrifað!)  - Annars er það ótrúlegt á tímum samkeppnislaga og alls eftirlits með samkeppni að þessi stóra sameining í mjólkuriðnaðinum skuli vera leyfð. - Svo er eins og alltaf áður að öll hagræðingin leiðir til aukins kostnaðar og meiri flutninga á ofhlöðnum þjóðvegum. - Alltaf er það neytandinn sem borgar fyrir rest. -Sástu ekki alla ýsuna sem flaut út úr flutningabílnum sem valt á Fjöllunum í gær. Hefði nú ekki verið hagkvæmara fyrir þjóðarbúið að landa þessu á Austfjörðum eða safna nokkrum gámum saman í eitt skip? - Þetta voru jú 22 tonn.

Haraldur Bjarnason, 15.5.2008 kl. 23:05

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Eða nota flugvöllinn til að flytja út aflann...Halli, - nota flugvöllinn. 

Hvar eru allar heitingar útgerðarinnar um að nýta flugvöllin til útflutnings á afla.  Völlurinn var tekin í notkun 1993 og ekki bólar á útgerðarmönnum enn. Geta útgerðamenn ekki notað á sér kollinn? 

Ég bara spyr, - eins og Kristinn Pétursson.

Þessi fiskur hefði betur allur verið kominn á markað í Oostende.

======

Ps.  Það verður mjólkurhristingur í öll mál þá vikuna sem mjókurbíllinn fer á hliðina á Biskupshálsinum. 

Benedikt V. Warén, 15.5.2008 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband