13.12.2008 | 13:19
Ég endurtek, - fangelsi á Reyðarfjörð!!
Þorpið stendur tilbúið, bara þarf að setja rimla fyrir gluggana og tvöfalda rafmagnsgirðingu umhverfis Bectel-vinnubúðirnar, sem standa núna auðar. Þar er pláss fyrir um 750 fanga í einsmanns klefum. Rafmagn er frá Kárahnjúkavirkjun í tveim öflugum línum niður á álverslóðina rétt hjá, - bara að stinga í samband.
Öll afþreying á staðnum og nægjanlegt grjót í fjörunni til að virkja sköpunargleðina í listrænum föngum. Álfasteinn á Borgarfirði hefði yfirumsjón með verkefninu.
Kjörin nýsköpun á landsbyggðinni og auðvelt að framfylgja samþykktum ríkisstjórnarinnar um að færa störf út á land.
Bagalegt að fresta nýbyggingu á Litla-Hrauni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.