12.2.2008 | 12:58
Egilsstaðir hornreka hjá Veðurstofunni.
Á síðasta ári var talsverð umræða um útsendingu veðurfrétta í sjónvarpi. Þar stóðu veðurfréttamenn (-konur) oftast fyrir Austurlandi á meðan á veðurfréttatímanum stóð, sérstaklega var þetta pínlegt þegar brjóststórir veðurfræðingar háóléttir voru á vaktinni.
Talsvert bar einnig á ónákvæmni í flutningi veðurfrétta af svæðinu og oft ekki getið um þegar veður var gott á Egilsstöðum, heldur eingöngu sýnt veðrið á annesjum, eins og t.d. Dalatanga, sem oftar en ekki er mun lakara en inn til landsins.
Valdimari Benediktssyni blöskraði ástandið svo, að hann setti auglýsingu í Morgunblaðið og benti á vankantana og auglýsti eftir ólýgnum veðurfréttamanni. Það brá svo við að veðurfræðingarnir hættu að standa fyrir Austurlandi.
Hvort sem það er tilviljun eður ei, hættu að mæta háóléttir veðurfræðingar í útsendingu og einnig var íslandskortið minnkað þannig að flatbrjósta veðurfræðingurinn gat verið á skjánum án þess að skyggja á hálft landið.
Á nýrri heimasíðu Veðurstofu Íslands er kort, hvar fram koma veðurstöðvar er reglulega senda veðurupplýsingar inn í gagnagrunn stofunnar. Nú bregður ítrekað við, að hluti þessa upplýsinga eru ekki sýnilegar frá Egilsstöðum. Einnig hafa verið veruleg vanhöld á því að lesnar hafa verið veðurfréttir í útvarpi frá Egilsstöðum, þó upplýsingar þaðan séu gefnar á klukkustunda fresti. Dagskrárgerðarmenn hafa kvartað undan þessu í útsendingu fjölmiðlanna.
Ítrekað er búið að benda stofnunni á þessa vankanta en allt kemur fyrir ekki. Þetta er ástand sem ekki er Veðurstofu Íslands sæmandi og hér með er þess krafist að þessu verði kippt í liðinn, nú þegar.

Athugasemdir
Þeir spjalla nú í sjónvarpinu á stöð 2 meira um veðrið í útl en hér heima
Einar Bragi Bragason., 14.2.2008 kl. 10:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.