Egilsstaðaflugvöllur, eldgos og almannaheill.

Egilsstaðaflugvöllur hefur verið aðalflugvöllur fyrir Austurland síðan 1952 og stórum áfanga var náð 1993, þegar endurbyggður flugvöllur á Egilsstöðum var tekinn í notkun með varanlegu slitlagi. Með þeim endurbótum urðu til nýir og spennandi möguleikar á margskonar notkunar flugvallarins fyrir Austurland allt og til vara fyrir aðra flugvelli og yfirflug.

Veðurfarslega og landfræðilega er Egilsstaðaflugvöllur vel staðsettur og aðflug að flugvellinum eitt það besta á landinu og samkvæmt úttekt sérfræðinga er hann ákjósanlegur varaflugvöllur, þar sem andstæður í veðurfari eru mestar milli flugvalla og áreiðanleiki áætlunarflugs yfir 99%.

Nú hefur náttúran á Reykjanesi linnulítið látið að sér kveða og ítrekað hefur verið bent á annmarkana að vera ekki með tryggan flugvöll til að nýta þá Keflavíkurflugvöllur hrekkur úr leik.  Nú hefur jarðfræðingur sýnt fram á þessa alvarlegu annmarka og bent á hversu þröngt sjónsvið ráðamanna Íslands er gagnvart þessari náttúruvá.  Hvar dorma Almannavarnir Íslands? 

Ekki er einasta við æðstu ráðamenn þjóðarinnar að sakast.  Stjórnendur ISAVIA leggja metnað sinn í að gera veg Keflavíkurflugvallar sem mestan án þess að huga nægjanlega að varaleiðum.  Keflavíkurflugvöllur getur lokast í lengri eða skemmri tíma ef spár jarðfræðinga ganga eftir.  Verkefni tengd atvinnulífinu er teflt í tvísýnu.  Raunalegast er þó að horfa stöðugt upp á ráða- og aðgerðaleysi stjórnenda heimafyrir, að hafa ekki döngun í sér að beita Innviðaráðuneytið þrýstingi um að ráðherrann girði sig í brók hvað varðar marggefin loforð um uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar.

Það verður býsna seint í rassinn gripið, að gera Egilsstaðaflugvöll fullgildan í aukin umsvif, þegar gos hindrar flug til Keflavíkurflugvallar.  Hvernig á að koma búnaði frá Keflavík þegar hraun flæðir yfir aðkomuleiðir?  

Nú þegar þarf að hækka þjónustustig Egilsstaðaflugvallar, bæta tækjakost til afgreiðslu flugvéla og sjá til þess að eldsneytisverð sé það sama um land allt. Strax þarf að byggja akstursbraut og stækka flughlaðið.  Skipulagið er tilbúið og ekkert að vanbúnaði að hefjast handa nú þegar.  Samhliða þarf að hefja ferli við að byggja nýja flugstöð.  Þetta eru verkefni sem þolir ekki lengri bið. 

Heimafyrir verða ráðamenn sveitarfélagsins og hraða ákvarðanatöku um staðsetningu nýrrar Lagarfljótsbrúar til að rýmka fyrir lengingu flugvallarins.  Ákvarðanafælni sveitastjórnar í Múlaþingi verður að víkja, því tími framkvæmda er runnin upp

Ætla stjórnvöld að vera með allt niðum sig þegar hamfarirnar byrja og kyrja í einum kór "ÞETTA REDDAST!"


mbl.is „Undir það búin að það geti farið að gjósa hvenær sem er“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og nítján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband