12.6.2025 | 08:47
Bjúrókratasyndromið virkjað
Það þarf að þvinga löggjafann til að setja um þetta lög, þar sem fyrsta greinin verði að sá sem ætlar að setja á stofn einhverja starfsemi, í upp komnu húsnæði, beri að senda inn tilkynningu til bæjarfélagsins/borgarinnar um eðli starfseminnar.
Lögn segi til um hve langan fyrirvara þarf á slíkri tilkynningu eftir umfang verkefnisins.
Eftir þann tíma, segir lögin tiltaka og sannanlega er liðin frá því að stjórnvald hefur móttekið erindi framkvæmdaaðila og höfnun á starfseminni er ekki fyrir hendi, getur uppbygging hafist.
Fyrir þann sem ætlar að hefja starfsemi skal vera aðgengileg tenging við kröfur um þá starfsemi sem hefja skal. Þar sé hægt að prenta út lista með kröfum sem sem gerðar eru til starfseminnar.
Fyrir tiltekinn tíma í lögum um opnun starfseminnar, skal framkvæmdaaðili skila inn gögnum um að búið sé að uppfylla kröfur yfirvalda um starfsemina.
Áður eða eftir að starfsemin er hafin geta yfirvöld sannreynt hvort unnið sé samkvæmt reglugerðum og þá brugðist við.
Ekki þarf formlegt leyfi frá yfirvöldum um opnun, nema þau komist að því að ekki hafi verið farið að lögum. Þá er hægt að banna starfsemina þar til bætt hefur verið úr.
![]() |
Þriggja mánaða bið hjá Starbucks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:22 | Facebook
Athugasemdir
Ég var að komast að því að einn af þessum stöðum, sem þykist vera "bakarí", hefur í hyggju að opna vínveitingastað með opnunartíma til ellefu öll kvöld á jarðhæðinni í fjölbýlishúsinu þar sem ég á heima og ætlar bakatil í sama rými að hefja matvælaframleiðslu ("bakaríið") með dreifingu til smásölustaða um borg og bí og tilheyrandi umferð flutningabíla á svæði með slíkum skorti bílastæða að hvergi á landinu er dýrara að leggja í gjaldstæði. Ég hefði ekki vitað af þessu fyrr en eftir á nema ég hefði getað kynnt mér gögnin með auglýsingunni á vef Heilbrigðiseftirlitsins. Ef einhverjar reglur hindra að komið sé aftan að íbúum í sama húsi með svona löguðu, þá er er ég mjög hlynntur þeim reglum. Svona umfangsmikil starfsemi er íþyngjandi fyrir þá sem búa nálægt, reglur sem setja slíkri starfsemi einhver mörk eru það ekki.
Guðmundur Ásgeirsson, 12.6.2025 kl. 20:05
Hjartanlega sammála þér.
Ef sótt er um starfsemi sem fellur að umhverfi og mannlífi og gert eitthvað annað, á það að hafa afleiðingar.
Hins vegar þarf að einfalda kerfið svo heiðarlegir einstaklingar geti fengið eðlilega framvindu á sinni vegferð frá hugmynd að full sköpuðu verkefni.
Svo merkilegt sem það kann að virðast, þá er til heiðarlegt fólk á Íslandi og oft íþyngjandi fyrir þá að vera meðhöndlaður eins og ótýndir misyndismenn.
Benedikt V. Warén, 12.6.2025 kl. 20:59
Reglurnar eiga ekki að beinlínis opna fyrir það að svona lagað geti gerst. Hinir heiðarlegu sem ætla sér ekkert óeðlilegt hljóta á hinn bóginn að geta átt mjög auðvelt með að fara eftir reglunum og fá tilskilin leyfi fljótt án athugasemda.
Guðmundur Ásgeirsson, 12.6.2025 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning