Bílastæðagjöld á Akur­eyri og á Egils­stöðum

https://www.visir.is/g/20242577953d/bilastaedagjold-a-akureyri-og-a-egilsstodum
 
Ingibjörg Isaksen skrifar 30. maí 2024 14:45
 
Síðustu misseri hef ég bæði í greinum og í fyrirspurnum á Alþingi lýst áhyggjum mínum af síhækkandi verði á innanlandsflugi síðustu misseri. Flugsamgöngur innanlands skipta þá sem búa á landsbyggðinni miklu máli og mikilvægt er að þær séu raunhæfur kostur fyrir þá sem þar búa. Enn á ný berast fregnir af aukinni gjaldtöku sem mun nú fyrst og fremst verða íþyngjandi fyrir íbúa landsbyggðarinnar, það er gjaldtaka á bílastæðum við flugstöðvarnar á Akureyri, Egilsstöðum og Reykjavík. Nógur er kostnaðurinn nú fyrir.

Landsbyggðarskattur?

Búið er að setja upp bílastæðakerfi með aðgangsstýringu sem les bílnúmer og stefnt er að því að hefja nýtingu þess á næstunni. Markmiðið er sagt vera að bæta gestum þjónustu og ferðaupplifun, sem er verðugt markmið, en mikilvægt er að gjaldtakan sé hófleg og komi ekki á sama tíma niður á notendum þjónustunnar.

Samkvæmt gjaldskrá eru fyrstu fimm klukkustundirnar fríar en gert er ráð fyrir að dagurinn muni kosta 1750 kr. Þess ber að geta að þeir einstaklingar sem ætla að nýta sér innanlandsflug t.d. vegna heilbrigðisheimsóknar ná í flestum tilfellum ekki fram og til baka á innan við fimm klukkustundum. Fyrstu sjö dagana er gert ráð fyrir að dagurinn muni kosta 1750 kr. næstu sjö daga á eftir 1350 kr. og svo 1200 kr. hver dagur eftir 14 daga. Kostnaður vegna skemmri ferða getur því orðið töluverður, og bitnar einna helst á þeim sem búa utan Akureyri eða Egilsstaða og þurfa að keyra lengri leið á flugvöllinn. Þá þarf að huga að hvernig gjaldtakan mun horfa við bílaleigum og tryggja að kerfið sé skilvirkt fyrir þær og að óþarfa kostnaður lendi ekki á þeim, enda mikilvægur liður í ferðaþjónustu á landsbyggðinni.

Það er þörf á betri útfærslu

Vissulega hafa myndast álagspunktar á bílastæðum við flugstöðvarnar, er það þá einna helst þegar stór millilandaflug eru frá flugstöðvunum. Að mínu mati mætti réttlæta gjaldtöku vegna slíkra ferða, enda væri það í samræmi við það sem gengur og gerist við flugstöð Leifs Eiríkssonar. Sú sem hér skrifar telur mikilvægt að huga betur að útfærslu vegna styttri ferða, sér í lagi þeirra sem eru að sækja sér heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðið, en viðbúið er að viðbótarkostnaður komi til með að leggjast á fólk af landsbyggðinni sem þarf að sækja slíka þjónustu.

Sú sem hér skrifar telur mikilvægt að hægja hér aðeins á ferðinni og skilgreina betur gjaldtöku með þessum hætti. Það er ekki boðlegt leggja á auka kostnað á íbúa landsbyggðarinnar með svona einhliða aðgerð. Því hef ég komið málinu á framfæri í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og beitt mér fyrir því að gjaldtakan verði tekin til skoðunar á vettvangi nefndarinnar.

Höfundur er þingflokksformaður Framsóknar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt V. Warén

Velti því fyrir mér, hvort þingflokksformaður Framsóknar sé ekki í neinu sambandi við fyrrverandi Innviðaráðherra og núverandi Fjármálaráðherra.  Það vill svo skemmtilega til að umræddur einstaklingur er formaður Framsóknar og heitir Sigurður Ingi Jóhannsson.   Hvernig væri að splæsa á hann símtali og fá upplýsingar hjá honum um hvort þetta sé í fullu samráði við hann.  Trúlega hefur hann eitthvað með vinnubrögð stjórnenda ISAVIA að gera.

Benedikt V. Warén, 30.5.2024 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband