3.4.2024 | 08:34
Ekkert kjaftæði lengur
Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, er ítrekað búinn að lofa framkvæmdum við Fjarðaheiðargöng, en ekkert gerist. Hann lofar endurbótum á Egilsstaðaflugvelli. Þar gerist ekkert. Axarvegur er ekki enn komin á dagskrá, þrátt fyrir loforð þar um. Ekki er enn búið að semja við landeigendur um land undir veginn.
Sleifarlagið er með ólíkindum og fé til vegaframkvæmda hefur minnkað umtalsvert. Það er gert til þess að hægt sé að sinna gæluverkefnum VG í ótímabær verkefni vegna orkuskipta og í óskilgreind mál vegna loftslagsmála.
Austurland er fær sömu meðhöndlun hjá ríkisstjórn Íslands og nýlendur urðu fyrir fyrr á öldum af hendi þeirra sem meira mátti sín.
Tími kjaftæðis er löngu liðinn og tími verka er runninn upp.
Fjarðarheiðargöng gætu borgað sig fljótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:35 | Facebook
Athugasemdir
Allir íbúar landsins og ferðamenn líka eru búnir að bíða í áratugi eftir tvöföldun Reykjanesbrautar. Á meðan hrannast upp líkin og ekkert gerist.
Bjarni (IP-tala skráð) 3.4.2024 kl. 11:36
Æ, æ, hvað er að heyra.
Er ekki eitthvað annað sem orsakar slysin en nægjanleg vegbreidd? Mér dettur í hug áfengi, eiturlyf, vanbúnar bifreiðar og hraði yfir leyfðum ökuhraða.
Sjötíu og sjö milljarðar eru komin í lostslagshít VG sem enginn hefur minstu hugmund í hvað fóru. Fjarðagöng kosta um fjörutíu milljarða. Tvöföldun Reykjanesbrautar talsvert minna.
Gott ef það síðarnefnda mundi koma í veg fyrir slys. Það væri hreint frábært.
Kveðja frá Austurlandi, sem löngum situr á hakanum í verklegum ríkisframkvæmdum.
Benedikt V. Warén, 3.4.2024 kl. 14:55
Aðskildar aksutrsbrautir bjarga lífum. Ekki eru öll slys vegna annarlegs ástands ökumanna. Raunar er það frekar undantekning heldur en reglan.
En endilega eyðum tugum milljarða í samgöngubætur fyrir 500 manns frekar en samgöngubætur fyrir alla þjóðina ásamt stærsta atvinnuveg þjóðrinnar. Þegar það er búið þá þarf grátkór landsbggðarinnar að finna sér eitthvað annað til að væla yfir. Flugvöllur á hvert krummaskuð? Hvernig hljómar það?
Bjarni (IP-tala skráð) 3.4.2024 kl. 16:52
Maður kemst við að fá gusuna úr viskubrunni þínum Bjarni.
Smá athugasemdir samt.
Þetta var fræðsluhorn dagsins í stuttu máli, um hve eitt fámennt sveitarfélag á Austurlandi getur verið magnað.
Benedikt V. Warén, 3.4.2024 kl. 18:06
Ef það þarf pólitíska ákvörðun um að halda bæ í byggð þá á sá bær ekki að vera í byggð. Þetta með ferðamennina, þetta er sá fjöldi sem fer um Reykjanesbraut fyrir hádegi flesta daga.
Bjarni (IP-tala skráð) 3.4.2024 kl. 18:45
Sæll Bjarni.
Varstu ekki að tala niður samgöngubætur fyrir 500 manns?
Ljóst er að fjöldinn var gróflega vantalinn hjá þér.
Eiga þessir einstaklingar minni rétt á viðunandi samgöngubótum?
Fyrir stuttu var Reykjanesbrautin ófær vegna snjóa nokkrar klukkustundir.
Þá var kvartað undan því að tengingin við hágæðasjúkrahús í Reykjavík.
Á Seyðisfirði er ekki sjúkrahús.
Fimm daga einangrun hrelldi Seyðfirðinga vegna ófærðar á Fjarðarheiði.
Seyðfirðingar eiga að sitja við sama borð og aðrir, að komast á hágæðasjúkrahús?
Kveðja úr Múlaþingi.
Benedikt V. Warén, 3.4.2024 kl. 19:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.