10.3.2022 | 11:06
Er allur sannleikurinn sagður?
Það kostar fórnir að lifa í samfélagi. Því fylgja bæði kostir og gallar. Það er erfitt að reka bæjarfélag án þess að atvinnulífið sé blómlegt og íbúar hafi atvinnu til að framfleyta sér og sínum. Á Seyðisfirði er staðan snúin eftir hörmungarnar, svo vægt sé til orða tekið.
- Hvað um stærstu atvinnurekendurna?
- Er fiskvinnslan ekki á hættusvæði?
- Hvað verður um hana?
- Hvaða líkur er á að henni verði lokað endanlega?
- Hvað kemur í staðinn?
Þar með er ekki sagt að ekki skuli hlustað á íbúana, einungis bent á að finna þarf út hvað hægt er að gera í staðinn fyrir þau störf sem tapast og helst að bæta í þegar kemur að atvinnuuppbyggingu.
- Hvaða lausnir eru í sjónmáli?
- Er t.d. hægt að vera með landeldi í Seyðisfirði?
- Hvað annað er í boði?
Upphrópanir bæta atvinnuástand lítið, jafnvel þó verið sé að höfða til háværs hóps íbúa, ekki endilega meirihlutans.
Öflug atvinnustefna er grunnur hvers samfélags.
Gagnrýnir sveitastjórn Múlaþings harðlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Sveitarstjórnarkosningar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.