25.3.2021 | 16:29
Hver er munurinn á hrúgast saman á gossvæði eða skíðasvæði??
Hvað er að gerast hjá ráðamönnum þjóðarinnar?
Eru sóttvarnagrúppan alveg að missa sig?
Afhverju má hópast á gossvæði með hjálp björgunarsveita, en ekki fara á skíðasvæði?
Afhverju þurfa Austfirðingar að sæta sömu takmörkunum og í Reykjavík?
Hvað eru mörg smit í Reykjavík á móti smitum á landsbyggðinni?
Afhverju er ekki hægt að koma upp litakerfinu, sem hefur verið talað um?
Hvers vegna eru ekki sett upp sóttvarnahlið eins og þegar mæðuveikin var í algleymingi?
Næst þegar sóttvarnargrúppan fer í berjamó, verða þau líklegast öll saman í einni jarðýtu!?!
Átti erfitt með að hemja mig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Sveitarstjórnarkosningar | Facebook
Athugasemdir
Svarið við þessu er einfalt Pelli.
Það er ekki til heil brú í öllu heila kóvítis kjaftæðinu,
-og því fyrr sem almenningur áttar sig á því og tekur upp eðlilega lifnaðarhætti, því betra mannlíf í blómlegum byggðum.
En við skulum rétt vona, -svona berjanna vegna, -að athygglissjúka sóttvarnargrúppan haldi sig við Hörpuna.
Magnús Sigurðsson, 25.3.2021 kl. 16:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.