23.8.2019 | 12:06
Auðvita á ekki að sóa fé Reykjavíkurborgar í tóma vitleysu....
...og náttúrulega frábært að meirhlutinn skuli loks komast að því. Braggamálin með sjálftökuliðið í borgarsjóð og innfluttum rándýrum puntustráum hefur greinilega rifið upp glyrnurnar á meirhlutanum.
Betra seint en aldrei.
Hitt er meirihlutanum í borgarstjórn greinilega ekki ljóst, hvað síðar verður, að hér situr hann í skjóli lögbrota, sem af lagatæknilegum ástæðum er ekki hægt að dæma hann frá.
Brotið er jafn alvarlegt fyrir það.
Einhverjir hefðu haft vit á því að þegja og skammast sín.
Það er hins vegar ekki hægt að ætlast til þess af meirihlutanum í Reykjavíkurborg.
Þar ræður siðblindan ríkjum.
Vandræðaleg erindisleysa Vigdísar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það skal bara tala niður allt sem kemur frá Miðflokknum.
Sigurður I B Guðmundsson, 23.8.2019 kl. 17:35
Satt segir þú Sigurður. Gott að halda þeim við efnið, það segir manni að þau eru skíthrædd við Miðflokkinn, enda mun hann rjúfa mörg skörð í hina flokkana í næstu kosningu.
Benedikt V. Warén, 23.8.2019 kl. 20:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.