5.11.2018 | 11:28
Orkusóðinn Ísland. Stefna VG í umhverfismálum?
Bændablaðið segir svo frá:
"87% raforku á Íslandi sögð framleidd með kjarnorku, kolum, olíu og gasi
Frá því í desember 2011 hafa íslensk orkufyrirtæki gefið út og selt upprunaábyrgðir raforku. Það ár voru seldir slíkir pappírar sem námu um það bil 2 teravattstundum [TWst] vegna raforkuframleiðslu á Íslandi en heildarframleiðslan nam 16,8 TWst. Nú er salan komin í nær 17 terawattstundir, eða um 87% af rúmlega 19 TWst framleiðslu samkvæmt gögnum Orkustofnunar.
Samkvæmt gögnum sömu stofnunar var nánast öll raforkuframleiðsla frá endurnýjanlegum orkugjöfum árið 2011. Úr jarðvarma 27% og vatnsorku 73% en einungis 0,01% er framleidd með jarðefnaeldsneyti. Meirihluti raforku í Evrópu átti hins vegar uppruna sinn í jarðefnaeldsneyti og kjarnorku."
https://www.bbl.is/frettir/frettir/87-raforku-a-islandi-sogd-framleidd-med-kjarnorku-kolum-oliu-og-gasi/20353/
Sjá einnig: https://pelli.blog.is/blog/pelli/entry/2225358/
Hvað er í gangi hjá Íslenskum stjórnvöldum?
Tilraunaland með tækninýjungar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.