15.12.2015 | 15:24
Verður líka að þola gagnrýni
Sá sem hefur sterkar skoðanir á mönnum og málefnum, verður að þola það að aðrir geta verið ósammála. Það er nú einu sinni réttur í ríki, þar sem tjáningafrelsi ríkir.
Það er því með ólíkinumdum að að Birgitta Jónsdóttir og Dagur B Eggertsson fyllist útbelgdri réttlætiskend fyrir hönd Bjarkar, ef andað er í átt til hennar, hvað þá meira. Það er nú meiri helv.... viðkvæmnin.
Eru þessi tvö ambassadörar Bjarkar á Íslandi?
Hvað um málfrelsi, upplýsta og gagnsæja umræðu?
Má bara nota hana til að niðurlægja suma stjórnmálamenn?
En..... ég veit ekki afhverju mér datt í hug í þessu tilefni:
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2015/12/15/modgadi_tikina_og_verdur_sendur_i_fangelsi/
Gunnar Bragi frussaði í vandlætingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
kæru íslendingar og fjölmiðlar þeirra
ég er búin að vera upp í sumarbústað , ÚTI Á LANDI ( sem ég elska ) og greinilega missti af stórum leðjuslag . kannski fyrir bestu . ég er nú ekki vön að verja mig en vegna náttúrubaráttunnar langar mig að reyna að leiðrétta einn stóran misskilning :
mig langar aðeins að ræða þýðinguna á orðinu " redneck" í íslenskum fjölmiðlum sem ég notaði í viðtölum við rolling stone , sky news og fleiri í síðustu viku . í mínum haus er þetta orð yfir fólk sem sér sinn þjóðflokk betri en aðra . eru sannfærðir að þeir geti lifað án heildarinnar og oft hlynntir vopnaburði . finnast þeir æðri náttúrunni og að þeir eigi að stjórna henni .
fyrir mig hefur þetta orð aldrei tengst strjálbýli neitt endilega , redneks eru alls staðar í öllum löndum
og bara svo það sé alveg á hreinu : ég elska af öllu hjarta ísland og sérstaklega náttúruna og strjálbýlið
áfram rúral !!!
gleðileg jól
hlýja
björk
p.s. já ég borga skatta á íslandi
Kristbjörn Árnason, 15.12.2015 kl. 16:18
Sæll Kristbjörn, þakka lítilætið að kikja inn á síðu mína.
Verst að þú ert að verða eins og Steini Briem á síðunni hans Ómars Ragnarssonar, copy/paste.
Nægir þér ekki að setja eitt stk. af athugasemd inn á síður þeirra sem tjá sig um þetta mál?
Kveðja af Fljótsdalshéraði
Benedikt V. Warén, 15.12.2015 kl. 17:40
Benni minn, eins og þú veist mæta vel er það nú ekki vaninn hjá mér. Ég leit á þetta bara sem einstakan vinagreiða við. Bara svo misstir ekki af þessu. Hafðu það gott um jólin félagi
Kristbjörn Árnason, 15.12.2015 kl. 20:13
Æ það var nú gott Kristbjörn, nú get ég glaður dottið inn í frið og kærleik jólanna.
Takk sömuleiðis.
Kveðja
Benedikt V. Warén, 15.12.2015 kl. 20:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.