15.6.2012 | 22:28
Þetta er ekki kjördæmapot, - þetta er grímulaust hneyksli.
Það er með ólíkindum hvernig þingmenn skríða fyrir ofríki forvígismanna og kjósenda í Eyjafirði. Hvernig væri að þeir sömu upplýstu um hve miklum fjármunum er búið að moka í Eyjafjarðasvæðið úr ríkiskassanum síðastliðin fimm ár og hverju það hefur skilað.
Ótrúleg afskræming á einkaframkvæmd, að ríkisfyrirtæki skuli vera meirihlutaeigandi og ríkið sjálft bera síðan alla fjárhagslegu ábyrgðina. Sér er nú hver einkavæðingin og væri hollt ungum sjálfstæðismönnum á Akureyri íhuguðu merkingu orðsins.
Ótrúleg afskræming á einkaframkvæmd, að ríkisfyrirtæki skuli vera meirihlutaeigandi og ríkið sjálft bera síðan alla fjárhagslegu ábyrgðina. Sér er nú hver einkavæðingin og væri hollt ungum sjálfstæðismönnum á Akureyri íhuguðu merkingu orðsins.
Harma umræðu um kjördæmapot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þetta er algjör skandall.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.6.2012 kl. 22:54
Er mikil togstreita á milli Akureyrarflugvallar og Egilstaðaflugvallar Benedikt?
Ég vil allavega meina það að tímabært hafi verið að endurbæta flugvöllinn á Akureyri svo stórar flugvélar geti lent þar... en líklega erum við ekki sammála miðað við skrif þín hér að ofan..
Stefán Stefánsson, 17.6.2012 kl. 12:44
Þakka innlitið Ásthildur, var á Akureyri og ekki við tölvu til að svara fyrr.
Benedikt V. Warén, 19.6.2012 kl. 00:13
Stefán. Sé ekki hvernig þú sérð togstreytu um flugvallarmál sérstaklega út úr þessum ofangreindu skrifum mínum.
En vegna þess að þú nefnir það, þá láttu mig endilega vita um eftirfarandi:
1. Hvað það kostaði að lengja flugvöllinn á Akureyri?
2 Hveju skilaði það í því að stærri vélar gætu notað hann?
3 Hver er kostnaður við hönnun á nýju aðflugi (aðflugskort innifalin)?
4 Hvernig koma nýju aðflugin út og hve stórar vélar geta ILS aðflug inn á braut 01?
5 Hver er aukningin á umferð stærri flugvéla um flugvöllinn, sem ekki gátu nýtt hann fyrir lengingu?
6 Hver eru veður lágmörkin fyrir Boeing 737 inn á flugvöllinn og hvernig nýtist ILS aðflugið við þau skilyrði?
Benedikt V. Warén, 19.6.2012 kl. 00:30
Jæja Stefán Stefánsson. Þú ert alveg kjaftstopp. Ég er ekki hissa á því.
Benedikt V. Warén, 20.6.2012 kl. 10:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.