14.3.2012 | 17:37
Uppsigaður og taugaveiklaður sértrúarsöfnuður.
Það er með sérstaklegri gleði sem maður fylgist með tryllingslegum hrunadansi Samfylkingarinnar þessa dagana. Ástæðan er að framsóknarflokkurinn er að kroppa í líkþorn prelátanna í söfnuðinum.
Auðvita er þetta hárrétt hjá Sigmundi, þetta er ekkert annað en samsafn einstaklinga sem halda að eilíft líf fylgi inngöngu í söfnuð ESB. Það er að sjálfsögðu ekkert annað en ofsatrú og meðlimirnir, sem mynda þannig hóp, - er sértrúarsöfnuður.
Það er orðið morgunljóst að þessi söfnuður er tilbúinn að ganga fyrir björg í sannfæringu sinni um gósentíð á hinum óendanlegu lendum ESB-himnaríkisins.

Sértrúarsöfnuður en ekki stjórnmálaflokkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.