14.11.2011 | 10:03
...og Byggðastofnun einnig...
...vegna þess að þetta eru óþarfar stofnanir ef menn hafa rænu á að taka upp nýrri og skilvirkari vinnubrögð. Það þarf að stokka upp á nýtt í grautarpotti samskipta ríkis og bæja í skiptingu fjarmuna þegnanna. Þar hefur lengi hallað verulega á, - sveitarfélögum í óhag.
Sitjandi ríkistjórnir hafa ávallt búið að því að eiga ráð til að skattleggja borgara landsins, ef illa árar, - það heita landslög. Þegar sveitarfélögin lenda í fjárhagserfiðleikum, þá tala þingmenn og ráðherrar um óráðssíu.
Þetta þarf að laga. Sveitarfélögin eiga að fá að njóta stærri hluta þeirra tekna og verðmæta, sem verða til í heimabyggð.
Öll skattinnheimta verði í höndum bæjar- og sveitarfélaga, sem síðan verði gert að greiða í einn sjóð skv. höfðatölu, öll sömu krónutölu miðað við hvern einstakling óháð aldri og stöðu.
Sitjandi ríkistjórnir hafa ávallt búið að því að eiga ráð til að skattleggja borgara landsins, ef illa árar, - það heita landslög. Þegar sveitarfélögin lenda í fjárhagserfiðleikum, þá tala þingmenn og ráðherrar um óráðssíu.
Þetta þarf að laga. Sveitarfélögin eiga að fá að njóta stærri hluta þeirra tekna og verðmæta, sem verða til í heimabyggð.
Alþingi á að sjá um löggjafavaldið og framkvæmdavaldið á í ríkara mæli að vera hjá fólkinu, þ.e. hjá sveitarfélögunum.
Til þess að gæta jafnréttis milli ríkis og sveitarfélaga, verður að bylta skattkerfinu og gjörbreyta.Öll skattinnheimta verði í höndum bæjar- og sveitarfélaga, sem síðan verði gert að greiða í einn sjóð skv. höfðatölu, öll sömu krónutölu miðað við hvern einstakling óháð aldri og stöðu.
Vilja leggja niður Jöfnunarsjóð sveitarfélaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta þarf að laga. Sveitarfélögin eiga að fá að njóta stærri hluta þeirra tekna og verðmæta, sem verða til í heimabyggð.
Þetta er nákvæmlega málið. Landsbyggðin heldur uppi höfuðborginni en ekki öfugt eins og 101 elítan álítur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.11.2011 kl. 11:13
Sæl Ásthildur.
Búinn að viðra þetta fyrirkomulag oft áður. Sé ekki að nokkur annar sé sammála því.
Takk fyrir innlitið
Benedikt V. Warén, 15.11.2011 kl. 14:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.