11.3.2024 | 16:41
Því verr gefast heimskra manna ráð...... Fækka ráðherrum?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vill fækka í ráðherraliðinu. Það gáfulegasta sem lengi hefur sést á prenti.
Einfaldasta tillagan er náttúrulega bara að fækka ráðherrum og hafa þá 10 eða 11 eins og þetta var í upphafi þessarar stjórnar, segir hún og segir að það myndi senda skýr skilaboð til almennings um að ríkisstjórninni væri raunverulega annt um að ná tökum á ríkisútgjöldunum.
En þau sem hafa stjórntækin og hafa allt embættismannakerfið með sér, hafa allar þessar stóru flokksskrifstofur með sér, eru ekki tilbúin með þá útfærslu sem við þurfum að heyra hvernig á borga 80 milljarða. Það er ekki verið að stjórna þessu landi.
Þá gildir hið fornkveðna.
Því verr þykir mér sem oss muni duga heimskra manna ráð, er þau koma fleiri saman.
Hins vegar má spurja.
Er ekki bara best að ráðherrar sinni sínum verkum niður í ráðuneytinu?
Það virkaði vel í einu fjósinu um árið þegar spurt var.
Er ekki bara best að kjósa Framsókn?
VG tekið Sjálfstæðisflokkinn í bóndabeygju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |