12.2.2024 | 12:00
Fjármálalæsi Alþingismanna og Pisa könnunin
Reglulegt upphlaup verður á Íslandi, þegar niðurstaða Písakönnunarinnar er gerð opinber. Þá er rokið til og farið á nornaveiðar og sökudólgurinn skal finnast og svara til saka.
Hvað er málið?
Skortur á fjármálalæsi hefur lengi verið viðvarandi vandamál á Íslandi, ekki síst á hinu háa Alþingi, að ekki er verið að hagræða né að sýna fyrirhyggju eða hófsemi í skattlagningu.
Þetta kristallast í umræðuna um innflutning flóttamanna. Þar virðist þingheimur ekki hafa neina glóru hvernig þjóðfélag okkar er uppbyggt. Maður veltir fyrir sér hvort ekki þurfi að koma á 101 námsefni fyrir verðandi þingmenn um samfélagsmyndina, sem við lifum og hrærumst í áður en þeir fá það ábyrgðamikla verkefni að stjórna landinu af löggjafaþinginu.
Lengi virðist það hafa verið aðalvinnan margra Alþingismanna, að finna leiðir til að seilast sem dýpst í vasa landsmanna og skreyta gjörninginn með mismunandi nöfnum s.s. komu- og þjónustugjöld.
Grímulaust heitir þetta að skattpína almenning.
Það virðist algjörlega óháð því að Alþingismenn eru í vellaunaðri vinnu hjá landsmönnum og eiga að reka samfélag þeirra á þann hátt að það sé ekki meira íþyngjandi fyrir íbúana en öðrum sambærilegum þjóðum.
Dæmi um óráðssíuna.
- Bensínskattur var lagður á jarðefnaeldsneyti til að fjármagna lagningu og viðhald þjóðvega. Í hvað eru þeir peningar notaðir? Hvernig hefur hlutfallið breyst í fjárlögum og hvernig hefur það skilað sér til að bæta vegakerfið?
- Náttúrhamfarasjóður var settur á koppinn og safnað í hann fé. Hvar eru peningarnir úr honum?
- Ofanflóðasjóður, er hann til? Hvað eru miklir fjármunir til í honum? Hvað er búið að borga mikið úr fé sjóðsins til stjórnarmanna?
- Þjóðarsjóður?? Enn eitt bixið til að hafa fé af landsmönnum í eitthvað allt annað en í það verkefni sem talað er um í upphafi.
- Tímabundin hækkun á virðisaukaskatti til að mæta áföllum. a) Fljótlegt að setja hann á en nánast ógjörningur að færa hann í fyrra horf.
- Tímabundin hækkun á virðisaukaskatti til að byggja þjóðarhöll. Sjá 5.a.
Þetta er bara til að nefna smá dæmi um hvernig fjármagni landsmanna er sóað, oftast í annað en þeir voru hugsaðir í upphafi.
Þessu verður að linna og Alþingismenn verða að fara að vinna vinnuna sína fyrir þá sem borga launin þeirra.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)