4.6.2021 | 14:38
Grillaðar grísalappir getur verið afleiðingin.....
...á að haga sér eins og svín og ef eitthvað væri spunnið í þennan bjána ætti hann ærlega að skammast sín.
Því miður er alltaf til svona lið. Það sér ekki fyrir endann á háttalagi sínu og afleiðingum sem kunna af að hljótast. Það sem er svo öllu verra er að fljótlega koma aðrir, sem þurfa að toppa þennan fáráðleika.
Þetta er dauðans alvara.
![]() |
Ekki eðlilegt að haga sér svona |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.6.2021 | 14:15
Önnur fluggátt inn í landið ekki í sjónmáli.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit um að reyna að dreifa ferðamönnum um landið, m.a. með því að nýta ekki eingöngu Keflavíkurflugvöll í þeim tilgangi að koma ferðamönnum inn í landið virðist fátt eitt í sjónmáli um aðrar lausnir.
Ljóst að stjórnun í innkomu ferðamanna eru enn í sama gamla farinu, sem jaðrar við náttúrulögmál. Ekkert virðist geta hnikað þeirri skoðun ráðamanna á SV-horninu og samgönguráðherra virðist ekki hafa neina stjórn á verkefninu þrátt fyrir stór orð um að breytinga sé þörf. Ráðuneytið gaf út Hvítbók þar sem átti að taka á þessu máli, en einhver hafði komist í að lagfæra kaflann um þau mál.
Nýsameinað sveitarfélag Múlaþing sá ástæðu til að álykta um þessi mál.
Byggðaráð Múlaþings mótmælir harðlega þeim áformum sem koma fram í Hvítbók um byggðamál um að aðgerð B.10. í núverandi áætlun, jöfnun á aðstöðumun á millilandaflugvöllum, falli þar út.
Byggðaráð Múlaþings lítur svo á að aðgerðinni sé ekki lokið og felur sveitarstjóra að skila inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
Hvar eru þingmenn NA-kjördæmis?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)