Var það þá ölæði........

.....þegar Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson skáluð í kampavíni, fyrir inngöngu í Schengen?  Þá var þjóðin ekki spurð.  

Þarf bara stundum að fá ráðleggingar hjá þjóðinni?


  


mbl.is Sakar ráðherra um gerræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar hitti skrattinn ömmu sína.

Ótrúleg hvað hægt er að gera mikið mál úr úldnu hræi sem umsóknin sannarlega var orðin.  

Málið löngu dautt og því mál að kasta rekunum, þó fyrr hefði verið.

Og annað mál.  Hvers vegna eru menn á innsoginu út af því að þjóðin var ekki spurð í þetta sinn?

Sami inssogshópurinn sagði ekkert þegar sótt var um.  Ekki var þjóðin spurð. 

Það fór alla vega hressilega fram hjá mér.


mbl.is „Þetta eru hrein og klár undirferli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðnýta banka, sem uppvísir eru að glæpastarfsemi.

Í hverju landi eru lög, sem þegnar landsins verða að beygja sig undir, ella eiga þeir á hættu að fá sektir og eftir atvikum refsingu í formi sekta og/eða frelsissviftingar.

Fyrirtæki sem ekki fara að leikreglum eiga það sama yfir höfði sér.  Banka- og fjármálastofnanir, sem beinlínis gera út á það að finna smugur í landslögum og gera út á það að þjónusta efnaða einstaklinga aðstoða þá við að skjóta undan skatti, eiga að sæta því að vera þjóðnýttar.

Séu lögin ekki nægjanlega skýr, verður að skerpa á þeim þannig að fullkomlega verði ljóst þessum stofnunum, að ef minnsti grunur vaknar um misferli, verði hægt að leysa stjórnendur umsvifalaust frá störfum og að stjórnvöld yfirtaka starfsemina.


mbl.is Vill að tekið verði hart á HSBC
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífeyrissjóðirnir, ný hugsun.

Oft hef ég velt lífeyrissjóðakerfinu fyrir mér og hversu stórt "apparat" það er orðið og miklir fjármunir sem fara í það eitt að reka sjálft sig.  Einhverja lausn þarf að finna, sem getur höndlað það verkefni við að sinna eldri borgurum við starfslok, því sífellt stækkar hópurinn.  Vandséð er hvaða leiðir eru heppilegastar en ég tel að eitthvað „kerfi“ verði að vera við líði og því sambandi hef ég hugsað upp eftirfarandi:

Við fæðingu verður stofnaður reikningur í Seðlabanka Íslands og er númerið kennitala viðkomandi einstaklings.  Þessum áfanga verði fagnað með því að ríkið leggi sem svarar t.d. 50.000 IKR inn á reikninginn, sem hefur lága vexti, t.d. 1.5% en er vísitölutryggður. Iðgjald verði greitt inn á reikninginn samkvæmt ákveðinni forskrift og er skattfrjáls. Það er hægt að fóðra það vegna lágra vaxta.

Við kaup á fyrstu íbúðinni, verði heimilt að taka út af þessum reikningi allt að 90% innistæðunnar til íbúðakaupanna, svipað og gert var í „den“, þegar sparimerki voru við líði.  Eftir það verði hann lokaður aftur til elliáranna. Tryggja verður að ekki verði hægt að „gambla“ með þessa peninga.

Í lokin er viðkomandi eigandi fjármagnsins, eða erfingjar hans. Útfæra þarf endurgreiðsluplan við töku lífeyris, þannig að um mánaðarlegar greiðslur sé að ræða miðað við áætlaðan líftíma einstaklingsins.

Til að mæta óeðlilegum frávikum, t.d. vegna ótímabærra fjarveru af vinnumarkaði vegna veikinda, varanlegri örorku og að menn verið „óeðlilega“ gamlir, er greitt til Tryggingastofnunar ákveðið óafturkræft hlutfall til að mæt slíkum verkefnum. Langvarandi atvinnuleysi yrði ekki inni í þessum pakka.

Nú þegar væri hægt að hefjast handa við að breyta lögum. Síðan að stofna þessa reikninga í Seðlabanka fyrir þá sem eru í lífeyrissjóðum og færa inn í þetta kerfi. Nákvæmlega er vitað hvað hver og einn á þar. Eignir lífeyrissjóðanna verði seldar og eðlilegt að nota það fé inn í Tryggingastofnun til nefndra sérverkefna. Þeir sem ekki eru í neinum lífeyrissjóði, verði gefinn kostur á að greiða inn á sinn reikning framreiknaða upphæð, eða liggja utan þess ella. 

Kosturinn er:
- Einfaldara kerfi, kostar lítið í utanumhaldi
- Ríkistryggt, ef fjármálalegt hrun verður, er allt tapað hvort eð er
- Ríkið (við sjálf) getur fengið lán hjá Seðlabankann til arðbærra framkvæmda, s.s. samgöngubætur, virkjanir og félagslegar íbúðir
- Við eigum sjálf peningana, sem við höfum aflað í gegnum tíðna og fáum þá til baka í lokin

Einhverjir vankantar eru efalaust á þessu, en þá er bara að sníða þá af.

Davíð fær hrökkbrauð....

... en undir því nafni gengur þetta hlaupaembætti hér eystra,  þar sem ekki er um eiginlegt " brauð" að ræða eins og t.d. þegar "Séra Bergur Magnússon vígðist aðstoðarprestur séra Árna Gíslasonar að Stafafelli í Lóni veturinn 1797 og fluttist þangað um vorið. Sumarið 1822 fékk hann síðan brauð þetta."
mbl.is Davíð Þór Jónsson verður prestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endilega njótið þess.....

....það veður hvort eð er ekki lengi úr þessu.

Skemmtilegt hvað það er alltaf fréttnæmt þegar sólin skín á suð-vestur hornið, - og þó er það ekki merkilegt í ljósti þess hve fátítt það er.
mbl.is Sólríkur dagur á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er Hvalasafn á Húsavík, hvers lags vinnubrögð eru þetta?

Vita menn ekki að það er Hvalasafn á Íslandi?

Vita menn ekki að það er á Húsavík?

Þarf að níða skóinn niður af Húsvíkingum?

Hvers vegna er ávallt reynt að gera út á það sama og aðrir hafa gert, stolið og stælt af Reykvíkingum?

Vantar frumkvæði í þá?

Djasshátíð Egilsstaða - Jasshátið í Reykjavík

Dagar myrkurs á Austurlandi - Slökkt á götuljósum í Reykjavík

Halaskoðun á Húsavík - Hvalaskoðun í Reykjavík 

 


mbl.is Fluttu hvalina í tuttugu gámum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mynd nr.4 Kirkjan á Búðareyri við Reyðarfjörð?

Sýnist þetta vera kirkjan á Búðareyri við Reyðarfjörð.  Það er nú búið að byggja við hana safnaðarheimili.
Fjallið bak við hana er sennilega Kollaleirutindur og dalurinn þar sem Búðaráin rennur um.

Þetta sjónarhorn væri hægt að ná við N1 (KHB gamla) verslunina.  En rétt væri fyrir staðkunnuga á Reyðarfirði að skoða þetta betur. 
mbl.is Leitar á slóðir afa síns í hernáminu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú erum við að tala saman...

... byrja á að sameinast Færeyingum og færa síðan alla stjórnsýslu í höfuðstað eyjanna, - Þórshöfn.  

Ekkert þarf að gera, eyjaklasann heitir áfram Færeyjar og Ísland verður bara stærsta eyjan í klasanum. Þórshöfn er nær Bruxell, það yljar efalaust einhverjum um hjartaræturnar, að færa höfuðstaðinn nær ESB kötlunum.

Hugsið ykkur stöðun sem við værum þá komin í!.  

Öll fiskimiðin!  

Vá, - maður lifandi!!

 

 


mbl.is Gæti flutt stjórnarráðið til Þórshafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV við sama heygarðshornið.

Ótrúlegt að hlusta á Útvarp allra landsmanna hamast við að finna einhverja talsmenn þess, að færa EKKI ríkisstofnanir út á landsbyggðina.

Hisn vegar ætti það ekki að koma manni á óvart, stofnun sem lagði niður allar stafsstöðvar sínar á landsbyggðinni og rústaði Rás 2, sem var með starfsstöðvar á landsbyggðinni.

Ekki skemmir heldur fyrir í þessari ófrægingarherferð, að Framsóknarflokkurinn er við stjórnvölinn á þjóðarskútunni ásamt Sjálfstæðisflokknum.  En það er stofnuninni nægt tilefni til að beita öllum meðulum til að reyna að draga úr trúverðuleika ríkisstjórnarinnar.  Skiptir þá engu þó þurfi að toga og tegja á sannleiknum í allar áttir.

RÚV = Útvarp Reykjavík góðan daginn!

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband