Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2013
31.8.2013 | 18:34
Því miður þá er þetta ekki frá Kárahnjúkum enda.....
Moldrok og rykmistur á Austfjörðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2013 | 17:37
Íslenska ríkið taki Vatnsmýrina eignarnámi....
....þar sem ríkir almannahagsmunir eru í húfi. Reykjavíkurborg á eingöngu lítinn part í Vatnsmýrinni og létt verk ætti að vera slíta þessa fáu fermetra út úr borginni.
Stjórnarskráin segir:
72. gr. Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.
Ef Reykjavíkurborg stendur við sinn keyp, verður að grípa til þeirra meðala sem þarf til að hnekkja því. Ef skipulgasvaldið í stjórnarskránni er þessari grein yfirsterkari og ekki gengur að knýja fram eignarnám, verður að finna nýrri höfuðborg stað. Stað þar sem allir þegnar þjóðarinnar verði velkomnir til að þyggja, ekki eingöngu að vera áhorfendur og greiðendur framkvæmda misvitra borgarfulltrúa.
Þá kemur sterkt inn að fara að dusta rykið hugmyndum Trausta Valsonar og byggja höfuðborg landsins inn á hálendi Íslands og færa alla opinberan rekstur þangað. Þá verða svipaðar vegalengdir fyrir alla í stjórnsýslu, menntun og á hátæknisjúkrahús.
Tveir vilja flugvöll í Vatnsmýri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt 1.9.2013 kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
21.8.2013 | 12:47
Srtætó styrktur af ríki á sama tíma og......
Er það réttmætt að greiða niður strætó í Reykjavík og allir landsmenn borgi það og skattpína síðan farþega sem nýta flugið og hafa ekki sömu möguleika á að nýta strætó??????
Segja Strætó njóta ólögmætrar ríkisaðstoðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt 1.9.2013 kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.8.2013 | 13:04
Frábært framtak.
Almenningur á landsbyggðinni verður að standa saman í þessu máli, hagsmunirnir eru ríkir.
Í vor verður kosið til sveitastjórnar, þá er tækifæri að kjósa þá inn á lista sem hlynntir eru flugvellinum í Vatnsmýrinni, ekki síst að velja á listana í Reykjavík.
Samhliða sveitastjórnakosningunum, verði mönnum gefinn kostur á að kjósa um flugvöllinn í Reykjavík. Fyrri kosning, sem ítrekað er vitnað í, var tómt rugl og yfirlýsing þáverandi borgarstjóra af sama tilefni, embættinu til vansæmdar.
Hjartað í Vatnsmýrinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt 1.9.2013 kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.8.2013 | 10:20
Það var þá bættur skaðinn.....
Það virðist hafa skapast hefð í Fjarðabyggð og víðar, að flugvellir séu sérstakleg vel fallnir til íþróttaiðkana, gönguferða og bílaspyrnu. Það er viðvarandi vandamál og svo kostar stórfé að koma þeim í lag ár hvert til að þeir geti þjónað sínu upphaflegu hlutverki og að lokum gefast stjórnendur upp fyrir þessu ofríki og flugvellirnir eru lagðir af.
Það er ekki bara í henni Reykjavík, sem menn hafa horn í síðu flugvalla.
Flugvélarnar víkja fyrir hundum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2013 | 16:41
Það er ekkert sem bannar.....
Yfirvöld hafa gengið mjög hart fram í ítrustu kröfum er varðar eftirlitsþáttinn á einkaflugvélum, þannig að rekstur þeirra er á við að reka lítið flugfélag, slíkur er kostnaðurinn og pappírsfarganið.
Er þá ekki rökrétt framhald fyrir einkaflugmenn, að fara út í einkarekstur?
Einkaflugmenn þurfa leyfi til að fljúga með farþega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)