Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Hverjum er ekki sama.

Það fer nú að vera fréttnæmt þá sjaldan sem hún er edrú, ekki á trippi eða laus úr fangelsi.
mbl.is Amy Winehouse handtekin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vændisþáttur RÚV Egilsstöðum

Það er fróðlegt að fylgjast með fréttum af meintu vændi á Egilsstöðum.  Það er eins og ágætur fréttamaður hafi ekki áttað sig á að þetta er talin ein elsta ef ekki lang elsta atvinnugrein í heimi.  Ótrúleg flétta að tengja þetta stóriðju og framkvæmdum á Austurlandi.  Veit fréttamaðurinn ekki að framkvæmdum eru á lokastigi og þorri þeirra sem við Kárahnjúka vann, eru farnir af svæðinu.  Er þetta ekki gömul frétt?? 

Það er löglegt að stunda vændi á Íslandi og löglegt að verða sér út um það.  Þriðjið aðili má hins vegar ekki græða á því.  Það er því alveg á mörkunum að fréttamaðurinn geti flutt af þessu fréttir, vegna þess að hann er þessi þriðji aðili, sem hefur hagnað af því með að selja fréttina....-eða hvað??

 


Ólafur stendur á sínu.

Veit ekki betur en að núvaerandi borgarstjóri hafi haft þá skoðun lengi og ekki farið í grafgötur með hana, að flugvöllurinn ætti að vera áfram í Vatnsmýrinni.  Það leiðir af sjálfu sér, að skipulagstillagan er arfavitlaus að hans mati og þorri þjóðarinnar er honum sammála.
mbl.is Ólafur segist ekki hafa skipt um skoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krosssaumur borgarfulltrúans

Í Vísi (http://visir.is/article/20080505/SKODANIR03/696625839) skrifar Oddný Sturludóttir greinina "Krossferð borgarstjóra", sem er um skipulagsmál í Reykjavík og er í henni að (kross-) sauma að borgarstjóra sínum fyrir að segja sína skoðun á skipulagsmálum Vatnsmýrarinnar.  Ég verð nú bara að viðurkenna það hér, þetta útspil borgarstjóra er eitt það vitrænasta sem komið hefur úr borgarstjórakróknum nú í langan tíma.

Borgarfulltrúinn Oddný Sturludóttir er eins og örfáir aðrir reykvíkingar, blinduð af einhverju óskilgreindri "fóbíu" út í Reykjavíkurflugvöll og vill hann burtu.  Merkilegt nokk þessi hópur er nær allur saman kominn í borgarstjórninni, óháð flokkslínum. 

Það gleymist í skrifum þessa ágæta borgarfulltrúa, að Reykjavík er fráleitt höfuðborg reykvíkinga einna, og hér upplýsi ég ef til vill hið stóra leyndarmál sem henni var hulið.  Það fylgir vandi vegsemd hverri og þar með talið að samgöngur við borgina verði eins góðar og kosið verði, jafnvel þó það rugli svefn stöku borgarfulltrúa. 

Annað er það, að samgöngumiðstöðvar (lestarstöðvarnar) í erlendum  borgum eru í miðbænum, en  þar sem flugið eru okkar samgöngur, er eðlilegasti hlutur í heimi að hafa flugvöllinn í Vatnsmýrinni. 

Í þriðja og síðasta lagi (að sinni) er umferðaröngþveitið algjört á þessum kafla í borginni og eingöngu að æra óstöðugan að troða niður byggð í Vatnsmýrinni áður en borgarfulltrúar sjá fyrir endanum á þeim vandamálum sem þeir hafa komið borgarbúum með illa hönnuðum umferðar mannvirkjum.

Bendi svo í lokin á frábæra lausn á heimasíðu Sturlu Snorrasonar og má sjá m.a. á þessari slóð http://midborg.blog.is/blog/midborg/entry/467918/#comments 
 


Fátt er svo með öllu illt.....

....að ei boði gott.  Kuldakastið utan suð-vesturhluta landsins er farið að fara í þær fínustu hjá nokkrum á skilgreindum "köldum" svæðum og ekki bætir úr skák að þeir hinir sem hafa góða veðrið hafa verið iðnir við að nudda þeim upp úr veðurfarinu með skemmtilegum tilvitnunum.

Eitt getum við þó huggað okkur við, - við erum laus við alla sinubruna. Devil  W00t

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband