Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2022

Klámhundar í breska þingsalnum vs íslenska

Breski þingmaður­inn Neil Parish hef­ur verið vikið úr þing­flokki Íhalds­flokks­ins fyr­ir að horfa á klám í sal neðri deild­ar þings­ins.

Tvær þing­kon­ur kvörtuðu und­an Parish fyrr í vik­unni eft­ir að þær sáu hann horfa á eró­tískt efni í sím­an­um sín­um er hann sat nærri þeim.

Svona taka þeir á þessu í Bretlandi

Tómas Þingborgari upplýsti að hann hefði ekki verið að kaupa vændi í Austurlöndum og þó hann neiti því ekki að hafa borga fyrir greiðann, - smokklaust.

En Tómas hefur fullt traust formanns síns. Það eitt skiptir máli í pólitík.


mbl.is Leystur frá störfum fyrir að horfa á klám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tekur krónan við af Euro í Evrópu?

Nú bíður maður spenntur eftir viðbrögðum Samfylkingarinnar og hliðarsjálfi í hennar, Viðreisn, um hvort ekki sé rétt að benda ESB á kosti þess að taka upp krónuna á EURO svæðinu.

 

 


mbl.is Evran ekki veikari síðan fyrir faraldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr Messías Ríkisútvarpsins?

Það má heita að varla sé fjallað um neitt hitamál á Alþingi, að ekki komi í fréttum RÚV ræðustúfur eins þingmanns, svo fremi að hann hafi tekið til máls um vel fréttalyktandi málefni.  Sjaldnar en ekki er viðkomandi þingmaður þefvís um hvað muni rata í fréttir RÚV.

Tilviljun? Nei, - fréttaeðli.

Umræddur þingmaður er fyrrverandi innanbúðarmaður í Efstaleiti og þekkir þar alla afkima og ranghala fyrirtækisins.

- o O o -

Ekki er langt síðan að RÚV var með stöðug innslög um sagnfræðileg álitaefni með ákveðnum einstaklingi.  Sá var síðar kosinn húsbóndi þjóðarinnar með heimilisfestu á Bessastöðum.

Tilviljun?  Nei, - markaðssetning.

- o O o -

Nú er beðið eftir því hvaða samfélagslega vegtyllu Sigmar Guðmundsson muni hljóta í boði RÚV.

Ja, - maður spyr sig.


Vindorkugörðum best komið fyrir á Esjunni

Frábær staður fyrir mörg vindorkuver er á Esjunni og fyrir því eru margar ástæður.

1. Nauðsyn á að framleiða raforku nálægt Reykjavík.

2. Stutt í kaupenda.

3. Ónotað landsvæði.

4. Alltaf vindur þar uppi.

5. Sjónmengun nær engin vegna þess hve láskýjað er oft þar.

6. Dregur væntanlega talsvert úr vindnæðingi í Reykjavík.

7. Hverfandi líkur á að fuglategund lendi í spöðunum vegna hæðar yfir sjó.

8. Engin sjónmengun af raflínum, gufu- og vatnsaflsvirkjunum.

9. Næga orku í vistvæna borgatlínu og græn orkuskipti.

Svona mætti áfram telja.  

Þetta verkefni steinliggur á þessum stað.


Frúin í Hamborg

Kunningi minn benti mér réttilega á að Umræðan um sum mál væri eins og leikurinn "Frúin í Hamborg"

Það má ekki segja já og nei.

Það má ekki segja svar og hvítt.

 

Hvað með frétt í RUV


Öldungadeild bandaríska þingsins hefur samþykkt tilnefningu Ketanji Brown Jackson í embætti hæstaréttardómara. Í fyrsta sinn í 233 ára sögu dómstólsins mun því svört kona verma eitt af dómarasætunum níu.

 

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/04/11/sigurdur_ingi_kaerdur_fyrir_brot_a_sidareglum/


mbl.is Sigurður Ingi kærður fyrir brot á siðareglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband