Bloggfærslur mánaðarins, mars 2013

Líffæra- og blóðbanki Íslands....

....er það ekki málið?  Utanumhald hjá núverandi Blóðbanka, sem breytir nafni samfara auknum verkefnum í Líffæra- og blóðbanki Íslands (LBÍ). 

Frjálst að gefa, frítt að þyggja.

Reikningseigandi er skráður með "reikning", sem er kennitala viðkomandi líffæra- og blóðgjafa
Þú gefur samþykki að gefa lifandi blóð og látinn líffæri
Þú hefur forgang í líffæra- og bóðgjöf, - frítt
Aðrir greiða skv. taksta um líffæri og pr. ltr af blóði

Skráning geti átt sér stað sérstaklega í gegnum heimasíðu LBÍ
eða krossa í viðkomandi reit á skattaskýrslu

Hver og einn skoðar kosti og galla þess að vera með, - eða ekki

Frjálst og óháð val án afskipta löggjafans að öðru leiti en að heimila LBÍ


mbl.is Leggst gegn ætluðu samþykki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af gefnu tilefni.

Matvælahneyksli skekur ESB löndin, þar sem hver matvælaframleiðandinn af öðrum hefur orðið uppvís að svindli og fölsun á innihaldslýsingu matvöru, þar sem hrossakjöt er notað í þá rétti, sem ekkert hrossakjöt eiga að innihalda.

Íslendingar hafa tekið þetta alla leið, það er ekkert kjöt í nautakjötsbökum og enginn hvítlaukur í hvítlauksrétti, skv. niðurstöðu Matvís fyrir skemmstu.  Það er náttúrulega tær snilld.

Þá dettur manni eitt dæmi í hug. 

Þú lendir í því að kaupa Svikinn Héra á veitingastað
Svikinn Héri inniheldur jafnan ekkert hérakjöt
Margrómað prósentusvindl getur einnig átt sér stað, þar sem ekki er alltaf allt sem sýnist í þeim æfingum

Þú spyrð vertinn hvort hérakjöt sé í réttinum
Veitingamaðurinn fullyrðir að svo sé, - 50%
Er annað kjöt í réttinum
Já, þetta er Svikinn Héri og við blöndum öðru kjöti saman við segir vertinn
Hvaða kjöt er það?
Hrossakjöt
Íhvaða hlutfalli?
50:50%
Einmitt, má treysta því?
Já þú getur treyst því 100%,  það er einn héri á móti einu hrossi!
Já, - sæll

 

 

 


Minnimáttarkenndin þjakar ekki þennan mann.

Gaman,  eða hitt þó heldur, að þurfa stöðugt að sitja undir svona gorgeir.  Skilur maðurinn ekki að að hann fékk ekki umboð frá þjóðinni til að koma með þessar tillögur.  Látum það nú vera, en þessi sibylja frá honum jaðrar við einelti gagnvart þjóðinni.  

Geta fréttastjórar ekki sett á hann fréttabann?  Það er hvort eð er ekkert nýtt sem frá honum kemur, alltaf sama tuggan.
mbl.is „Þetta heitir valdarán“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorvaldur Gylfason og skapari alheimsins

Þorvaldur Gylfason hefur af sérstöku lítilræði jafnan litið á sig sem jafningja þess, sem rétti Móse sáttmálann á Sinaífjalli (boðorðin 10), nema hjá Stjórnlagaráði voru boðorðin nokkuð fleiri og ekki jafn vel meitluð, hvorki í leir né mál.  Móse var að sögn, fjörutíu daga og fjörutíu nætur á fjallinu að semja við Guð sinn, en það lætur nærri að það sé sami dagafjöldinn og Stjórnlagaráð sat við sína iðju og hlustaði á Þorvald. 

Við hinir dauðlegu teljum hins vegar að hér sé um vinnuplagg að ræða, ekki sáttmála, sem krefst ítarlegrar yfirlegu og varfærni áður en endanleg útgáfa sér dagsins ljós.  Ítrekað hefur verið sýnt fram á það að margt mætti betur fara og annað þarf að skýra betur, til að ekki verði verr af stað farið en heima setið.

"Ef frestun stjórnarskrármálsins verður niðurstaðan eins og formaður Samfylkingarinnar lætur nú liggja að, kallar Alþingi yfir sig mestu vansæmd sögu sinnar allar götur frá 1845, ef ekki frá 930." er nú haft eftir Þorvaldi á Eyjunni.  Ekki er nokkur vafi að hér talar maður, sem ekki er þjakaður af mikilli minnimáttakennd.  Þó veltir maður fyrir sér, er þetta ekki sami maðurinn sem vildi borga ICESAVE?  Voru það ekki svik við þjóðina?  Er eitthvað að marka þennan mann?  Hvers vegna er fjölmiðlafólk sífellt að draga skoðanir hans fram?  Leiðrétting; það þarf ekki að draga skoðanir hans fram, þær koma, hvort sem manni líkar það betur eða verr.  En, - hefur einhver áhuga á þeim? 

Misjafnt er hvað telst jafnrétti, en það vefst ekki fyrir prófessornum og hér gefur að líta sýnishorn af tillögum Stjórnlagaráðs og ekki var annað að skilja á fréttum af prófessornum, að tillögur rásins hefði átt að leggja óbreyttar fyriri þjóðina í kosningu.

Eitt sýnishorn:

 "6.gr Jafnræði

Öll erum við jöfn fyrir lögum og skulum njóta mannréttinda án mismununar, svo sem vegna kynferðis, aldurs, arfgerðar, búsetu, efnahags, fötlunar, kynhneigðar, kynþáttar, litarháttar, skoðana, stjórnmálatengsla, trúarbragða, tungumáls, uppruna, ætternis og stöðu að öðru leyti.

Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna."

Hér er farið á hundavaði yfir jafnrétti og engar tillögur um hvernig ná á fram þessum jöfnuði, t.d. í búsetu.  Er það með endurgreiðslu til íbúa á afskekktum stöðum, svo dæmi sé nefnt eða með annarri prósentu á VSK-i og/eða tekjuskatti?

Annað: 

"39.gr. Alþingiskosningar

Á Alþingi eiga sæti 63 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir leynilegri kosningu til fjögurra ára.

Atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vega jafnt."

Hér vefst hins vegar ekki fyrir Stjórnlagaþingi að kveða skýrt að að vægi atkvæða skuli vera jafnt, enda 90% þingheims af stór-Reykjavíkursvæðinu, sem sogar til sín megnið af tekjum landsbyggðarinnar og síðan þurfa stjórnendur sveitarfélaga að fara sem beiningamenn og slíta út með töngum það sem margir Reykvíkingar kalla styrki út úr Jöfnunarsjóði.  

Hægt væri að leggja niður þann sjóð og Byggðastofnun, ef fjámunum yrði betur varið í því sveitarfélagi sem þeir verða til.  Þá mundi hægt og bítandi lagast íbúahalli landsbyggðar gegn Reykjavík.  

Fyrr en jöfnuði er náð í skiptingu fjárins, er tómt mál að tala um jöfnun atkvæða.  Í venjulegum hlutafélugum ræður eign hluthafa í hlutafélaginu, ekki höfðatala.  Auðvita ætti jöfnuðurinn að vera þannig í okkar "hlutafélagi", - Ísland ohf.

En hérna fer réttlætið verulega á skjön jafnréttishugljómun prófessorsins.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband