Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011

Molbúaháttur stjórnenda Reykvíkurborgar.

Það er verið að byggja stórhýsi við höfnina, sem aldrei mun standa undir sér.  Þar var krafa borgarinnar að ríkið kæmi myndarlega að verkefninu, ekki eingöngu við hönnun og byggingu hússins, heldur mun þurfa að veita rekstrarstyrki um alla framtíð í þetta verkefni. 

Það á að reyna að lokka allskonar atburði og ráðstefnur inn, sem fram að þessu hefur verið sinnt af öðrum annarsstaðar.  Hvernig verður það tæklað gagnvart samkeppnislögum? Hvað heitir slík ríkisstyrkt samkeppni? 

Hvað munu margir sækja atburði í þetta hús?  250.000 íslendingar?

Það er dálítið sérstakur þakklætisvottur sem Borgarstjórn sýnir okkur, sem tökum þátt í því að borga þetta sukk, hvort sem okkur líkar það betur eða verr.  Ekki á að auðvelda okkur landsbyggðartúttunum að berja herlegheitin augum, nema gegn enn meiri þóknun við að lengja leiðir í musterið. 

Nenni ekki lengur að benda á annað, s.s. nálægðina við hátæknisjúkrahúsið.  Þeir skilja hlutina betur, hver og einn af gömlu símastaurunum í Loðmundafirði, en samtals allir ráðamenn Reykjavíkurborgar.

Vonandi tekst Ögmundi að skjóta að einni lúku af seðlum, til þess að borgarráðið fallist á þessar löngu tímabæru framkvæmdir á Reykjavíkurflugvelli.  Sá umbúnaður sem innanlandsflugið býr nú við, er ekki eingöngu smánarblettur á Reykvíkungum, það er skömm af þessu fyrir alla þjóðina.   

Þjóð sem byggir höll yfir afþreyingu 250.000 manna ætti kinnroðalaust að geta skaffað rúmlega fokhelt hús fyrir um 500.000 manns, sem árlega láta sig hafa það að fara um núverandi flugstöð. 

Það er ekki svo, að verið sé að biðja um höll.

 


mbl.is Reisi nýtt hús við flugvöllinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar Guð rétti Móse boðorðin tíu....

...á Sínaífjalli, fylgdi þykkur doðrantur frá Bruxell í kaupbæti, eða því trúa a.m.k. pappírstætararnir í íslenska möppudýragarðinum.

Þeirra ríkistrú er; ef ekki er hægt að útfæra hlutina á A4 blaði, þá er ekki hægt að framkvæma hlutinn.    Þetta vissu hvorki Wright-bræður, Edison né nokkur annar uppfinningmaður á síðustu öldum. 

Sem betur fer.  Þá værum við enn i tofkofunum, -tæknilega séð.

Þessi pappísthriðjuverk á öllum sviðum er komið þvílíkt langt út fyrir allan þjófabálk, að það er hvorki  hægt að hlægja né gráta vegna þessara vinnubragða.

Ísland er umkringt náttúrulegum landamærum, Atlandshafi, og það langt frá lofthelgi annarra landa að ekki er löglegt að fljúga það á eins hreyfils vél, - nema með undanþágu. Lögin heimila ekki íslenskum einkaflugmanni að fljúga lengra frá landi, en að loftfar geti svifið til lands ef eitthvað á bjátar.  Undanþágu er hægt að veita gegn ströngum kröfum.

Flestar einshreyfils vélar eru í vandræðum að uppfylla þessi skilyrði, þegar flogið er til Grímseyjar, hvað þá ef stefnt er lengra.  Þetta er því miður ekki er hægt að rökræði á nokkurn vitrænan hlut við pappístætara yfirvalda né höfðu fyrrverandi samgönguráðherrar nokkra tilburði í þá átt að fá undanþágu á þessu rugli hjá reglugerðaprentsmiðjum í ESB sukksambandinu.

Eitt er athyglivert fyrir íslenskan einkaflugmann, sem ekki má fljúga út fyrir landsteinana án undanþágu.  Bróðurpart eyðublaðanna skal fylla út á ENSKU. 

Þetta toppar ruglið.  Ekki má fljúga utan, en menn verða að vera klárir í ENSKU.  Er ekki allt í lagi hjá yfirvöldum?

Einkaflugmenn verða því að sameinast í aðgerðum gegn þessum óaðgengilegum kröfum yfirvalda. 

Lýst er eftir tillögum.


mbl.is Frúin flýgur ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinsta för?

Eru blaðamenn mbl.is með skyggnilýsingar? 

Venjan er að faratæki fari sína síðustu ferð í eitthvað verkefni og ljúka því sómasamlega og komi allri áhöfninni heilli heim. 

En, -  ef farartækið ferst og kemur ekki til baka er viðeigandi að fjalla um að það hafi farið sína hinstu för.

Maður getur farið sína síðustu ferð í ÁTVR en hinsta för þess sama er í gröfina.


mbl.is Giffords viðstödd geimskot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er smá íslenskur útrásavíkingur......

....í kallinum? 

Eins og útrásavíkingarnir með allt niðrum sig, - en heimtar stórfé í starfslokasamning. 

Hver er fyrirmyndin? 

Föllnu bankastjórarnir?
mbl.is Sheen krefst 12 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband